störf þingsins.
Virðulegi forseti. Mig langar í örfáum orðum að vekja athygli á mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur. Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur ætlar að kynna starfsemi sína nk. sunnudag og hvet ég sem flesta til að fara þangað og kynna sér hana. Þetta er stórmerkileg stofnun sem hefur hjálpað Reykvíkingum eða aðstoðað allt frá árinu 1928. Nefndin er ekki síst merki um samtakamátt og samhug kvenna úr hinum svokölluðu hefðbundnu kvenfélögum sem og félögum kvenna innan stjórnmálaflokkanna í Reykjavík. Ég er til dæmis mjög stolt af því að tilheyra félagi sem stendur á bak við mæðrastyrksnefndina, Félagi framsóknarkvenna í Reykjavík.
Nefndin var stofnuð í kjölfar strands togarans Jóns forseta við Stafnes sem er ekki mjög langt frá Sandgerði. Við tengjum reyndar upphaf togaraútgerðar á Íslandi jafnan við togarann Coot sem kom til Hafnarfjarðar. Hann var fremur lítill innfjarðartogari og strandaði á Suðurnesjum skömmu síðar.
Í Reykjavík ákvað fyrirtækið Alliance hf. að láta efna til smíði á togara úti í Bretlandi sem fékk nafnið Jón forseti og kom til landsins 1907. Er hann fyrsti togarinn sem var sérsmíðaður fyrir Ísland og hafði Thor Jensen, framkvæmdastjóri Alliance hf., eftirlit með smíðinni og kom með ráðleggingar um styrkingu skipsins. Það fór líka þannig að fólk trúði á þetta skip. Það trúði því að svona stórt og vandað skip gæti ekki farist. Því miður urðu það þó örlög þess eins og fyrr getur.
Það er sagt að það hafi gengið svo mikið á nóttina sem skipið fórst við Stafnes að bæði líkön og myndir sem til voru af skipinu vítt og breitt, t.d. á heimili Thors Jensens, hafi brotnað þessa örlaganótt í janúar árið 1928.
Um helmingur skipverja fórst með togaranum. (Forseti hringir.) Konur brugðust skjótt við og vildu koma ekkjum og börnum til bjargar og var það upphafið að stofnun mæðrastyrksnefndar. Úthald og elja félaganna í kvenfélögunum er mjög lofsverð.