143. löggjafarþing — 99. fundur,  29. apr. 2014.

veiðigjöld.

568. mál
[14:44]
Horfa

sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra (Sigurður Ingi Jóhannsson) (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég skildi ekki alveg allt sem rann upp úr hv. þm. Helga Hjörvar — hvað hann var að meina nákvæmlega. (Gripið fram í.) Varðandi það hvort leggja eigi sérstakt gjald á makríl skal á það bent að það hefur verið rætt hér áður og fráfarandi ríkisstjórn sem hv. þingmaður var í hafði auðvitað möguleika á því, sérstaklega árið 2010 þegar menn ákváðu að fara þá leið sem hefur verið farin síðan. Sú ríkisstjórn kaus að gera það ekki heldur úthluta makrílnum, raða honum niður með tilteknum hætti á mismunandi útgerðarflokka og hefur þannig búið til lögmætar væntingar um að það verði gert áfram. Ég veit ekki alveg hvaðan hv. þingmaður er að koma þegar hann segir þetta.

Varðandi færeysku og grænlensku gjöldin þá er ekki eftir mínum upplýsingum búið að taka endanlegar ákvarðanir um þær fjárhæðir.

Varðandi það að makríllinn skili engu í þjóðarbúið held ég að heildargjaldtaka af makríl sé milljarður.