veiðigjöld.
Virðulegur forseti. Þetta er ekki flókið. Já, það er rétt, gjaldtaka okkar af makríl er milljarður. Gjaldtaka Færeyinga í fyrra var 2 milljarðar af svipuðum kvóta og samkvæmt fjárlögum fyrir þetta ár gera þeir ráð fyrir sömu tekjum, eða um 2 milljörðum. Það voru 75 danskir aurar á hvert kíló eða 15 kr. sem Færeyingar treysta sér til að innheimta af útgerðarmönnum, m.a. af útgerðum í íslenskri eigu, og þær útgerðir treysta sér til að borga. Samt kemur ráðherra hingað inn með tillögu um að jafnvel sömu útgerðaraðilar eigi bara að borga 7,50 kr. á Íslandsmiðum.
Varðandi fyrri ríkisstjórn þá gerðum við ráð fyrir því að greidd yrðu umtalsvert hærri veiðigjöld á þessu ári en ráðherra leggur hér til, m.a. á makríl, enda full efnisrök fyrir því.
Þegar ráðherrann neitar að skilja hvað við er átt þá hefur maður áhyggjur af því að umræðurnar í þinginu og í samfélaginu skili sér ekki til ráðherrans. Ég held að öllum finnist það eðlilegt að þeir sem fá ókeypis heimildir í makríl til að veiða (Forseti hringir.) borgi hærra gjald en þeir gera sem (Forseti hringir.) hafa skuldsett sig til kvótakaupa í öðrum tegundum (Forseti hringir.) vegna þess að við eigum tilkall til stærri hlutdeildar arðs (Forseti hringir.) í makríl en í öðrum tegundum.