143. löggjafarþing — 99. fundur,  29. apr. 2014.

veiðigjöld.

568. mál
[14:59]
Horfa

Lilja Rafney Magnúsdóttir (Vg) (andsvar):

Virðulegi forseti. Eins og ég sé þetta þá er ekki verið að breyta frítekjumarkinu neitt frá því sem var síðast. Það er eingöngu hætt að miða það við þorskígildi vegna þess að það er ekki lengur í gildi. Þetta gjald sem er lágmarksgjald getur farið niður í ekki neitt ef menn skuldsetja sig mikið, eins og hvati er til í frumvarpinu, með því að fá afslætti til kvótakaupa eru vextir af láninu vegna kvótakaupa til frádráttar. Telur hæstv. ráðherra það eðlilegt, miðað við að hann talar fyrir mismunandi útgerðarformum, að ríkið styrki það að menn kaupi kvóta, veiti afslátt vegna vaxta af þeim kaupum? Mun það ekki bara koma fram í því að kvótaverð hækki og samþjöppun aukist í greininni ef ríkið stuðlar að því að menn fái afslátt vegna vaxta á skuldsetningu vegna kvótakaupa?