143. löggjafarþing — 99. fundur,  29. apr. 2014.

veiðigjöld.

568. mál
[15:22]
Horfa

Jón Gunnarsson (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Það er samt ágætt að gera sér grein fyrir því hversu mikil þessi viðbótarálagning má vera. Við erum með 20% tekjuskatt á fyrirtæki. Á þetta að vera 10% umfram, 15%, 20%, 40%? Hvar liggja sársaukamörkin í þessu fyrir aðgang að auðlindinni? Við erum komin í 35%, eigum við að fara hærra? Ég hefði viljað fá tillögur frá hv. þingmönnum stjórnarandstöðunnar um það.

Mig langar líka að spyrja hv. þm. Kristján L. Möller um þær yfirlýsingar sem hafa komið frá m.a. hv. þm. Helga Hjörvar og hv. þm. Steingrími J. Sigfússyni. Þeir töluðu um það í fyrra að rukka mætti leigugjöld af makríl upp á 100 milljarða, um það var talað hér í þinginu. Makríllinn gæti gefið okkur 100 milljarða. Telur hv. þingmaður þetta raunhæfar hugmyndir? Þegar við lítum hér á upplýsingarnar sjáum við hver framlegðin er í þessum veiðum. Er þingmaðurinn (Forseti hringir.) sammála því að fella niður veiðigjald á rækju, lækka það umtalsvert á kolmunna, byggt á grunni þessara upplýsinga? (Forseti hringir.) Er hann sammála því sem kemur fram hjá hv. þm. Helga Hjörvar (Forseti hringir.) að hækka þurfi umtalsvert gjöldin á makrílstofninn?