143. löggjafarþing — 99. fundur,  29. apr. 2014.

veiðigjöld.

568. mál
[15:36]
Horfa

Kristján L. Möller (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Hv. þingmaður ræðir enn um hóflegt veiðigjald og leggur mér orð í munn hvað varðar prósentu. Ég ítreka það sem ég sagði áðan, ég hef ekki nefnt neina tölu og mun ekki gera. En sem dæmi um viðfangsefni okkar og erfiðleikana við að hafa í höndum réttar tölur og ræða um þær eins og þær eru þá nefni ég það sem ég gerði að umtalsefni í upphafi þessarar umræðu, þ.e. afslátt vegna kvótakaupa. Ég tek eftir því að í svarinu kemur fram að á Reykjanesi, í gamla Reykjaneskjördæmi, er tæpur 1 milljarður veittur í afslátt vegna kvótakaupa á því svæði. Ég leyfi mér að efast um að mjög hátt sérstakt veiðigjald sé greitt þar. En því miður fæ ég ekki að vita hvernig þessi afsláttur verður til og hverjir fá hann til að hafa betri gögn til að vega og meta hvað sé hóflegt veiðigjald, hver prósentan eigi að vera í hvert og eitt sinn.

Þetta er nú það viðfangsefni sem við höfum og það snýr að þeirri ríkisstjórn sem hv. þingmaður situr í. Okkur hefur verið neitað um þetta svar en miðað við daginn í dag vona ég að það komi mjög fljótlega.