veiðigjöld.
Frú forseti. Ég þakka fyrir spurninguna. Þetta kemur inn á það sem ég ræddi aðeins í ræðu minni og mér finnst vera áhyggjuefnið í sambandi við þetta frumvarp. Það er auðvitað eitthvað sem menn geta tekist á um og er kannski ekki til framtíðar litið stórmál hvort ríkið missir af einhverjum tekjum vegna þess að menn ganga of langt í lækkun veiðigjalda til eins árs. Áhyggjuefnið er stefnubreytingin í þá átt að fjarlægja þetta hugsuninni um að fanga auðlindarentuna og hafa hana andlag skattlagningar.
Jú, menn tala um almennt gjald. Nú hef ég að vísu ekki lesið þessa fréttablaðsgrein en ég hlustaði á framsögu ráðherra og menn tala um almennt gjald, það sem við höfum kallað almennt veiðigjald. Það er einhvers konar aðgangsgjald og menn hafa rökstutt það m.a. líka með því að hægt væri að taka eitthvert mið af þeirri þjónustu sem sjávarútvegurinn nýtur í formi hafrannsókna og stjórnsýslu og umsýslu af ýmsu tagi. Síðan var hugsunin að sérstaka gjaldið fangaði viðbótarframlegðina eða hagnaðinn, rentuna.
Er þá góð leið að reyna að færa það yfir í álag á tekjuskatt? Nei. Það er að vísu það sem útgerðin hefur alltaf viljað og fór strax að tuða um: Er ekki hægt að hafa bara til viðbótar tekjuskatt á okkur þegar við högnumst vel? Á því eru verulegir vankantar, og hv. þingmaður nefnir einn. Ef ekki er tekið á milliverðlagningarvandanum í sjávarútveginum í samsettum og tengdum fyrirtækjum er ómögulegt að stoppa það að stærstur hluti hinnar raunverulegu auðlindarentu færist yfir í vinnsluna og komi þar til uppgjörs. Ef þar er enginn sérstakur tekjuskattur er þetta farið.
Það er annað vandamál sem er vel þekkt og það er að menn fari að gullhúða handriðin. Þá er handhæg leið hjá fyrirtækjunum að koma sér undan greiðslu þessa sérstaka tekjuskatts — eins og reyndar tekjuskatts almennt en hvatinn verður meiri eftir því sem hann hærri — með því að fara í alls konar fjárfestingar og frekar ríkulegri en hitt og gera vel við sig á allan mögulegan hátt áður en ríkið (Forseti hringir.) fær sitt stutta strá út úr dæminu.