143. löggjafarþing — 99. fundur,  29. apr. 2014.

veiðigjöld.

568. mál
[16:34]
Horfa

Ásmundur Friðriksson (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrirspurnirnar. Mér er fullkunnugt um að gert er ráð fyrir því að verð á sjávarafurðum, reyndar landbúnaðarafurðum líka, muni hækka um allt að 30–40% á næstu árum. Það er framtíðarsýn sem er góð. Í augnablikinu erum við því miður ekki að upplifa það, markaðirnir eru á niðurleið. Ég hef séð töflur yfir það, verðtöflur, og þær eru sjokkerandi. Ég held að við hv. þingmaður getum verið sammála um að þess vegna þarf gjaldtakan að vera þannig að hún taki mið af því hvernig markaðirnir standa hverju sinni.

Varðandi sérstakt gjald á nýjar tegundir þurfum við að hafa það kerfi sem er þörf á, að útgerðir borgi fyrir nýja tegund en borgi þá væntanlega ekki líka leigu. Við getum ekki bæði selt bílinn og leigt hann, þannig að ég held að það sé mjög mikilvægt fyrir okkur að hafa bara eitthvert eitt sanngjarnt kerfi í því. Við höfum ákveðið að þetta kerfi sé við lýði, ég er svo sem ekkert að segja að ekki megi endurskoða það, en við getum ekki bæði leigt og selt hlutina.

Varðandi það að íslensk útgerð greiði 7,5 kr. á Íslandi en 15 kr. í Færeyjum og jafnvel 30 kr. í Grænlandi þá veit ég, og get svarað því til, að þar eru öðruvísi skiptakjör. Þar er veiðigjaldið tekið af óskiptum afla, þar eru öðruvísi hlutaskiptakjör þannig að ekki er alveg hægt að bera þetta saman sem krónu og krónu, það er ekki alveg þannig. En það er mál sem útgerðin og sjómannafélögin þurfa þá að ræða, en ekki er alveg hægt að bera það saman eins og hv. þingmaður biður mig um. Ég vona að ég hafi svarað þessu fullkomlega.