veiðigjöld.
Virðulegi forseti. Ég þakka fyrirspurnina.
Það er ljóst að árið 2012 var afar fengsælt og hliðhollt útgerðinni og vinnslunni. En það er auðvitað ekki hægt að skattleggja það mörg ár til viðbótar, það er ekki hægt að hafa það til viðmiðunar endalaust. Vídeóleigurnar græddu líka rosalega mikið í gamla dag, við náum ekki þeim skatti núna, það er ekki hægt að vera að fara langt aftur í tímann í því. Þess vegna er mjög mikilvægt að gjaldið sé lifandi og taki mið af markaði frá degi til dags, eins og ég minntist á hér í fyrri ræðu minni í dag.
Varðandi lágt veiðigjald þegar hann talar um þorskinn, 11 kr., það er nú reyndar 14 kr. miðað við slægðan fisk, þá vil ég minna á að síldin er á 10 kr. Mér finnst það nú afar hátt verð á síld miðað við þorsk. Það er líka þannig. Það er mjög einkennileg mismunun í þessu hvað síldin er há, og það þarf að fá svör við því hvernig það megi vera að síldin skuli bera svona hátt gjald ef við tökum mið af þorski, þó að ég fagni auðvitað þeim breytingum sem gerðar voru á stuðlunum og því öllu.
Varðandi uppboð á aflaheimildum, bara á hinum frjálsa markaði, þá er ég nú bara þannig gerður að ég vil aldrei hafna neinum slíkum hugmyndum en þarf að setja mig inn í það hvernig það getur gerst núna. Hæstv. sjávarútvegsráðherra er með frumvarp í smíðum um breytingar á fiskveiðikerfinu og það er sjálfsagt mál að skoða það. Ég ætla ekkert að hafna því að slíkar hugmyndir geti komið inn að einhverju leyti. Ég þarf þá bara að sjá hvernig það virkar, hvernig það geti tryggt framþróun og nýsköpun í útveginum og(Forseti hringir.) hinum dreifðu byggðum landsins kvótann.