143. löggjafarþing — 99. fundur,  29. apr. 2014.

veiðigjöld.

568. mál
[16:42]
Horfa

Ásmundur Friðriksson (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrirspurnina.

Hvað varðar fast gjald sem hv. þingmaður minntist á að ég hefði komið inn á í fyrri ræðu minni í dag var ég að tala um útfærslu sem væri þá föst prósenta sem væri hægt að endurskoða með tilliti til markaðsaðstæðna á einhverju ákveðnu millibili, ef við segðum að þorskur væri með 10% eða 5% eða 7% og síðan væri gjaldið tekið af hverri löndun og skilagreinar um hver mánaðamót skiluðu því gjaldi sem fengist út úr því.

Ég ætla að viðurkenna fúslega að ég þekki ekki allar tillögur sáttanefndar en ég man að þar var unnið afar gott og merkilegt starf sem er mjög mikilvægt að við getum haldið áfram að byggja ofan á, því að þar var víðtæk sátt sem skipti miklu máli að mínu viti og flestra og þar vann hv. þingmaður mjög gott starf.

Varðandi hófleg veiðigjöld er það auðvitað pólitíkin sem við erum að tala um hér, hvað séu hófleg veiðigjöld. Ég held að hófleg veiðigjöld séu þau þegar útgerðin getur fjárfest og getur skapað í samfélögum þar sem hún er, sterk útgerð í litlum samfélögum, getur stuðlað að nýsköpun og tækifærum fyrir unga fólkið í viðkomandi byggð til að koma heim og vinna þar við menntun sína. Það er afar mikilvægt.

Um aðskilnað veiða og vinnslu vil ég segja að ég held að styrkleiki íslensku fiskvinnslunnar og veiðanna séu þessi sterku fyrirtæki sem eru bæði í veiðum og vinnslu. En ég segi að við getum ekki í veiðigjöldum tekið rentu af vinnslunni og látið útgerðina borga það. Það finnst mér algjörlega ótækt. Við þurfum þá að finna aðrar leiðir með vinnsluna. Mér finnst ekki hægt að útgerð, sem ekki er tengd vinnslu, borgi í rauninni rentu af hagnaði vinnslunnar. Það er algjörlega óhugsandi og það er ósanngjarnt. (Forseti hringir.) Það er eins og nágranni minn ætti að borga hærra eða lægra fasteignagjald vegna þess að hann skuldaði meira eða minna en ég.