veiðigjöld.
Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Lilju Rafneyju Magnúsdóttur fyrir góða og efnisríka ræðu. Það er ekki von á öðru þegar hún tjáir sig um þessi mál, enda úr byggðarlagi sem er í nánum tengslum við sjávarútveg og hefur sjálf starfað í tengslum við fiskverkun. Hún þekkir þennan málaflokk kvenna og manna best hér í þinginu.
Mig langaði að spyrja hv. þingmann, af því nú var það þannig að í þeirri ríkisstjórn sem við studdum voru veiðigjöldin ákveðin tæplega 33 kr. á þorskígildi, svo var það lækkað niður í 16,88 og núna í 11,75. Við erum komin niður í næstum því þriðjung af því sem veiðigjaldið átti að vera af því sem við lögðum upp með. Nú er látið í það skína að þetta sé lífsnauðsynlegt vegna afkomu í greininni. Við sjáum hins vegar að verið er að selja varanlegar heimildir á 2.200 til 2.400 kr. kílóið og leiga á kílóið, þar treysta aðilar sér til að greiða um 200 kr.
Ég vil spyrja hv. þingmann: Telur hún þessi afkomurök fyrir þessari gríðarlegu lækkun á gjaldi fyrir sérleyfi sem útgerðarmenn hafa forsvaranleg?