143. löggjafarþing — 99. fundur,  29. apr. 2014.

veiðigjöld.

568. mál
[17:54]
Horfa

Ásmundur Friðriksson (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Mér finnst að ég verði að taka til máls undir þessum lið. Þegar maður er sakaður um pilsfaldakapítalisma eða að gefa auðmönnum einhverja eign sem þjóðin á vil ég alls ekki sitja undir því. Ég er ekki hér til þess að gefa einum eða neinum neitt. Hér erum við að reyna að tryggja hagsmuni þjóðarinnar og mér finnst mjög mikilvægt að við tryggjum sanngjarnan arð þjóðarinnar til fólksins. Þess vegna er ég alveg undrandi á því að hér kemur það fram aftur og aftur, í máli hv. þm. Sigríðar Ingibjargar Ingadóttur, að við séum að gefa gjafir til auðmanna í því formi að leggja ekki á upphafsgjald á hækkanir á fiskveiðiréttindum, kvóta, og að við séum í einhverri salamíaðferð, að skera niður hagsmunina. Ég held að við getum líka þá snúið þessu við og sagt að það sé verið að fara í salamíaðferð gagnvart fyrirtækjunum og verið að saxa þau niður þangað til ekkert verður eftir.

Þess vegna spyr ég: Á síðasta kjörtímabili, árin 2009–2013, jukust aflaheimildir í þorski úr 167 þús. tonnum í 210 þús. tonn, um 40 þús. tonn. Hvar er þá arðurinn af því sem þjóðin átti að fá?

Loðnan jókst úr 110 þús. tonnum í 584 þús. tonn. Hvar er þá arðurinn sem þið eruð að krefjast þess að við skilum þjóðinni? Hvar er þá arðurinn sem þið áttuð að skila þjóðinni á sínum tíma?