veiðigjöld.
Herra forseti. Ég held að það sé rétt að ég taki það fram að ég sat hér og hlýddi á ræðu hv. þm. Ásmundar Friðrikssonar og get tekið undir orð hans sjálfs, hann var ákaflega málefnalegur og lausnamiðaður. Okkar verk er að líta til framtíðar en fortíðin er með okkur. Það er til dæmis þannig varðandi fiskveiðiauðlindina að fólki svíður ranglætið, hvernig hún hefur verið látin af hendi endurgjaldslaust eða gegn lágum gjöldum. Þetta er sem sár á þjóðarlíkamanum. Þetta eru mál sem okkur hefur ekki enn tekist að leiða til lykta og það er okkar sameiginlega verkefni. (Forseti hringir.) Ég tek undir það með hv. þingmanni.