veiðigjöld.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna. Mig langar að spyrja hann út í stöðu mismunandi útgerðarflokka og hvort hann telji rétt að hafa annað fyrirkomulag á veiðigjöldum minni og meðalstórra fyrirtækja og stærri fyrirtækja eins og náttúruauðlindahagfræðingurinn Daði Már Kristófersson hefur rætt um að væri heppilegra. Telur þingmaðurinn eins og náttúruauðlindahagfræðingurinn að fjögur stærstu sjávarútvegsfyrirtækin sem hafa skilað ársuppgjörum, Síldarvinnslan, Samherji, HB Grandi og Vinnslustöðin í Vestmannaeyjum, sem högnuðust samanlagt um tæpa 28 milljarða á síðasta ári geti vel risið undir sérstöku veiðigjaldi eins og áformað var að leggja á samkvæmt auðlindarentuhugmyndafræðinni? Telur hann ekki eðlilegra að koma til móts við lítil og meðalstór fyrirtæki með meiri stuðningi en að fletja út lækkunina sem var gerð á síðasta ári í bolfiski á þessi stóru fyrirtæki jafnt og þau litlu burt séð frá því hver geta þeirra er til að greiða þetta gjald? Hefði ekki verið nær að stærri fyrirtækin greiddu hærra sérstakt veiðigjald? Þá væri hægt að koma meira til móts við þau fyrirtæki í greininni sem mörg hver eru vissulega í vanda og hv. þingmaður þekkir ágætlega til og ætti að hafa mikinn skilning á.