143. löggjafarþing — 99. fundur,  29. apr. 2014.

veiðigjöld.

568. mál
[18:23]
Horfa

Kristján L. Möller (Sf) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég hef aðeins tvær spurningar til hv. þingmanns, þær eru þessar: Hvaða flokkar lögðu á almennt veiðigjald á sínum tíma árið 2002? Hvað er sú upphæð há í dag, þ.e. almenna veiðigjaldið, miðað við framlagt frumvarp?