veiðigjöld.
Virðulegi forseti. Þeir flokkar sem byrjuðu á þessari veiðigjaldavegferð var ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks. Um það var sátt að fara þessa leið. Þetta var gert eftir vinnu í nefnd sem fjallaði um málið og þar voru menn sammála um að eðlilegt væri að leita gjaldtöku í greininni. Það var m.a. rökstutt með því að það ætti að standa undir þjónustu við sjávarútveginn, svo sem stofnunum eins og Hafrannsóknastofnun, Fiskistofu og að hluta til starfsemi Landhelgisgæslu. Ég held að enginn tali í sjálfu sér gegn því að greitt sé eitthvert afnotagjald af auðlindinni. Ég held að allir flokkar séu sammála um það og útgerðin hefur sjálf tekið undir það sjónarmið. En það verður auðvitað að taka mið af afkomunni á hverjum tíma.
Ég var að reyna að fara yfir það í ræðu minni áðan hvað aðstæður eru fljótar að breytast í þessari grein, hvað afkoman getur verið gríðarlega sveiflukennd og hversu mikilvægt það er fyrir okkur að reyna að skapa einhvern stöðugleika hér innan lands vegna þess að sveiflurnar geta ráðist mjög mikið af aðstæðum á mörkuðum og einnig hver þróunin er augljóslega að verða sem allir þekkja sem vel fylgjast með. Við horfum fram á nýja tíma í samkeppnisstöðu þjóðarinnar á erlendum mörkuðum.
Það eru vissulega að myndast líka tækifæri sem eru af hinu góða sem við höfum staðið saman að því að efla þverpólitískt. Það er t.d. fríverslunarsamningur við Kína. Ég sé gríðarleg tækifæri fyrir íslenskan sjávarútveg á þeim stóra markaði þar sem við höfum 10% forskot á helstu samkeppnisaðila okkar. Ég held að sjávarútvegurinn eigi eftir að vinna vel úr því. Ég man ekki töluna upp á krónu, en verður almenna veiðigjaldið ekki um 5 milljarðar (Gripið fram í.) á þessu ári, þ.e. samkvæmt frumvarpinu?