veiðigjöld.
Virðulegur forseti. Ég held að við höfum á síðasta kjörtímabili nálgast hugmynd að einhverju sem mætti kalla „eðlilegt veiðigjald“ eða hóflegt gjald sem væri einhvers staðar á milli þeirra hugmynda sem menn höfðu í því efni. Þar var auðvitað ekki um að ræða það gjald sem menn fengju fyrir heimildirnar á markaði, eins og við mörg viljum. Það gjald væri sannarlega margfalt það gjald sem lagt er til hér. Það var þó veiðigjald sem var umtalsvert hærra en þetta og hefði farið vaxandi og kannski verið einhver grundvöllur til málamiðlunar.
Ég held að það alvarlega í málinu sé að bæði LÍÚ og stjórnarflokkarnir fara mjög óskynsamlega leið í hagsmunagæslu fyrir stórútgerðina. Með því að fara í þessa aðför að auðlindagjöldum og reyna að ná þeim niður í næstum því ekki neitt, meðan bæði velferðarþjónustan og landsmenn allir þurfa sannarlega á því að halda að útgerðin leggi sitt af mörkum, þá eru menn að segja í sundur alla möguleika á einhverjum friði um atvinnugreinina. Menn voru að gæla við það eftir hrun að það mætti ná einhvers konar samkomulagi, einhvers konar málamiðlun milli ólíkra sjónarmiða þar sem menn féllust á það að útgerðin þyrfti einhvern stöðugleika í rekstrarumhverfi sínu, fyrirsjáanleika, samninga til einhvers tíma um einhverjar aflaheimildir en mundi á móti greiða eðlilegt endurgjald fyrir veiðiheimildirnar. Ég er hræddur um að þessi vanhugsaði leiðangur í aðförinni að veiðigjaldinu kippi algerlega fótunum undan möguleika á slíkri sátt og að sú sátt verði ekki (Forseti hringir.) nema stjórnarflokkarnir gerbreyti um stefnu í þessu efni.