143. löggjafarþing — 99. fundur,  29. apr. 2014.

veiðigjöld.

568. mál
[19:32]
Horfa

Árni Þór Sigurðsson (Vg) (andsvar):

Herra forseti. Já, þetta er fróðlegt, ég þakka hv. þingmanni. Ég held að það geti nefnilega verið gagnlegt að draga það betur inn í umræðuna nákvæmlega hvað var þarna á ferðinni og hvað menn voru sammála um og hvað ekki og hvernig menn túlka með ólíkum hætti svokallaða sáttaleið eða samningaleið, eða hvaða orð sem menn nota um það.

Hitt atriðið sem ég vildi viðra við hv. þingmann lýtur að því sem hann kom aðeins inn á varðandi almenna gjaldið og sérstaka gjaldið, þ.e. hugmyndafræðina á bak við það að almennt gjald væri tekið sem rynni þá í ríkissjóð en síðan væri sérstakt gjald afkomutengt og það færi í ákveðinn sjóð þannig að afkoma eða útkoma ríkissjóðs væri ekki háð þeim sveiflum sem lægju á bak við sérstaka veiðigjaldið.

Mér finnst þetta vera mjög mikilvægt og það tengist hugsuninni um auðlindarentu og það sem er nokkuð í umræðunni um auðlindarentu og skatt eða eitthvað þess háttar, hver munurinn er á því. Ef við hugsum okkur að það eigi að greiða gjald fyrir afnot af auðlindinni þá hlýtur það nánast að vera hugsað eins og hver annar kostnaðarliður við rekstur viðkomandi atvinnugreinar eða fyrirtækis, sem sagt einhver grunnur sem menn borga fyrir til þess að fá afnot af auðlindinni.

Ég vil spyrja hv. þingmann hvort hann sjái í því frumvarpi sem hér er fyrirliggjandi eitthvert fráhvarf frá þeirri hugmyndafræði sem hann rakti áðan og í hverju það fráhvarf felst þá, af því að mér finnst sjálfum ekki allt mjög skýrt í þessu frumvarpi. Mér þykir ekki alveg skýrt hvort menn ætli hér að fara yfir í skattheimtuleið eða ekki og hverfa frá hugsuninni með auðlindarentuna. Ef hv. þingmaður gæti aðeins farið yfir þetta með (Forseti hringir.) almenna gjaldið og sérstaka gjaldið og hvort frumvarpið boðar verulega stefnubreytingu (Forseti hringir.) hvað það snertir.