veiðigjöld.
Virðulegi forseti. Mig langar fyrst að segja um stjórnarskrárákvæðið um auðlindir landsins að ég tel það miklu skipta að þegar slíkt ákvæði verður sett í stjórnarskrána verði það þannig að alveg ljóst sé að það eigi við um allar auðlindir landsins, vegna þess að það hefur verið mjög mikið í umræðunni og t.d. var orðalagið á tillögunni sem kom frá stjórnlagaráði þannig að mér fannst hún alltaf bera þess nokkurn keim að menn voru með sjávarauðlindina í huga. Hvað varðar ákvæði í stjórnarskrá tel ég því skipta mjög miklu máli að það taki til allra auðlinda okkar í þessu landi.
Síðan er það náttúrlega svo að margir halda því fram að 1. gr. fiskveiðistjórnarlaga, um að fiskurinn í sjónum sé sameign þjóðarinnar, hvernig sem það er nú orðað, dugi hugsanlega ekki. Eftir því sem mér skilst væri það ekki aðeins á eignarrétti heldur kæmu kannski einhver atvinnuréttindi og á einhvern annan hátt en endilega með eignarréttarákvæðinu, hafi menn helgað sér þann rétt að geta sótt fiskinn í sjónum. Ég tel skipta gífurlega miklu máli að ekkert verði í stjórnarskrárákvæði eins og við vorum að tala um, sem geti gefið annað til kynna en að alveg ljóst sé að þeir sem hafa fengið að nýta auðlindina í allan þennan tíma eigi engan rétt fram yfir mig eða hv. þingmann Katrínu Jakobsdóttur.
Ég er hins vegar hrædd um að (Forseti hringir.) ekki verði úr því skorið nema fyrir dómstólum.