veiðigjöld.
Forseti. Ég vil byrja á að þakka hv. þingmanni ræðuna.
Tilgangur gildandi laga um veiðigjöld, heildarlaganna, er að tryggja þjóðinni hlutdeild í þeim arði sem nýting sjávarauðlinda skapar. Í þeirri hugmynd sem þau lög byggja á eru skýr tengsl á milli auðlindarentu í fiskveiðum og veiðigjalda.
Þessi lög slíta hins vegar þetta samband í burtu eins og hv. þingmaður fór ágætlega yfir áðan.
Kosturinn við auðlindagjöld umfram aðra skattheimtu er talinn vera sá að þau bjaga ekki hvata í atvinnulífinu þar sem eingöngu umframhagnaður er skattlagður og ákvörðun gjaldsins tekur ekki mið af hegðun fyrirtækisins. Í því frumvarpi sem hér er lagt fram til bráðabirgða, og annað stærra er náttúrlega boðað í haust, er búið að slíta þessi tengsl í burtu og það gæti borið í sér alls konar hvata fyrir fyrirtæki að haga sér með ýmsum hætti. Nú hefur hæstv. sjávarútvegsráðherra boðað að þetta sé skref í áttina að breytingum þar sem eigi að vera grunngjald eða tekjuskattur. Þá erum við endanlega búin að slíta þessi tengsl og um leið ber þetta í sér hvata til þess að fyrirtækin fari að haga sér með ýmsum hætti. Ég vil biðja hv. þingmann að fara yfir það með okkur hvort hún telji að þjóðin verði sátt við þessa breytingu.