réttur fatlaðs fólks til sjálfstæðs lífs.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir fyrirspurnina. Eins og hv. þingmaður tel ég að NPA, notendastýrð persónuleg aðstoð, skipti verulega miklu máli og sé þjónustuform sem við eigum að horfa til hvað varðar fatlaða einstaklinga. Það eru hins vegar fjölmargir aðrir þjónustuþættir sem þarf að huga að samhliða.
Eins og hv. þingmaður veit ágætlega sem fyrrverandi formaður þeirrar verkefnisstjórnar sem var skipuð um NPA-verkefnið tók töluverðan tíma að koma verkefninu af stað. Það tafðist umtalsvert miðað við þann tíma sem var í upphafi áætlað að mundi taka til þess að ná að prufukeyra og reyna hvernig væri best að hátta þessu. Miðað við þær upplýsingar sem ég hef fengið frá verkefnisstjórninni má telja að það þurfi hugsanlega lengri tíma til að átta sig á því hvernig sé best að halda utan um þetta verkefni. Ég hef í hyggju, ég náði því því miður ekki á þessu þingi, fyrir tímafrest, að koma til dæmis inn með frumvarp sem snýr að því að gefa aðilum vinnumarkaðarins tækifæri á því að semja um aukinn sveigjanleika þegar kemur að vinnutíma starfsfólksins sem hefur sinnt þessari þjónustu. Ég vonast til að geta komið með það inn í haust.
Það mun að sjálfsögðu taka ákveðinn tíma að finna hvernig því verður best háttað. Ég tel að þetta verkefni sé svo mikilvægt, og ég veit að hv. þingmaður er mér sammála hvað það varðar, að það skipti verulega miklu máli að við vöndum okkur við það og fáum þá reynslu sem við ætluðum okkur að fá þegar við fórum af stað með þetta tilraunaverkefni.