Seðlabanki Íslands.
Virðulegur forseti. Ég mæli fyrir frumvarpi til laga um breytingar á lögum um Seðlabanka Íslands, nr. 36/2001. Í frumvarpinu er sett fram ný eiginfjár- og arðgreiðsluregla fyrir Seðlabanka Íslands. Þetta er gert til að koma fjárhagslegum samskiptum ríkissjóðs og Seðlabankans í fastara form en nú er og þar með treysta fjárhagslegt sjálfstæði Seðlabanka Íslands. Fjárhagslegt sjálfstæði seðlabanka felur í sér þrennt: í fyrsta lagi að bankinn hafi sjálfstæðan rekstur og þurfi því ekki að reiða sig á opinber framlög með sama hætti og aðrar ríkisstofnanir, í öðru lagi að bankinn hafi fjárhagslegan styrk sem geri honum kleift að hrinda í framkvæmd þeim aðgerðum sem ráðast þarf í til að uppfylla markmið bankans og í þriðja lagi að stofnanaumgjörðin er lýtur að fjárhagslegum samskiptum seðlabanka og ríkissjóðs stuðli að því að æskilegum fjárhagslegum styrk sé viðhaldið. Í frumvarpinu eru þessi sjónarmið höfð að leiðarljósi.
Reynslan sýnir að þær aðstæður geta skapast að fjárhagsleg staða seðlabanka almennt setji stefnumörkun þeirra á sviði peninga- og gjaldeyrismála skorður sem kemur niður á árangri þeirra við að tryggja verðstöðugleika. Í frumvarpinu er gert ráð fyrir að mat á eiginfjárviðmiði Seðlabankans byggi á reglu sem treysti þessa stöðu bankans.
Til grundvallar frumvarpinu liggur starf vinnuhóps sem fjármálaráðuneyti og Seðlabanki Íslands komu á fót í upphafi árs 2012 til að endurskoða fjárhagsleg samskipti ríkissjóðs og bankans. Meðal þess sem hópurinn tók til skoðunar voru reglur um ráðstöfun árlegs hagnaðar Seðlabankans og mat á eigin fé bankans. Hópurinn hafði til hliðsjónar skýrslur og ráðgjöf utanaðkomandi sérfræðinga auk þess sem litið var til löggjafar um seðlabanka í Danmörku og Finnlandi.
Samstaða var um það innan vinnuhópsins að núgildandi regla um ráðstöfun hagnaðar Seðlabankans tryggði ekki fjárhagslegt sjálfstæði bankans á fullnægjandi hátt og gæti í sumum tilvikum gengið gegn markmiðum peningastefnunnar. Þannig getur komið til greiðslu hagnaðar til ríkissjóðs þrátt fyrir að eiginfjárstaðan sé talin ófullnægjandi, jafnvel þegar hún er neikvæð. Þá gæti núverandi umgjörð sömuleiðis leitt til þess að eiginfjárstaða bankans yrði mun sterkari en þörf er á. Í ákvæði 34. gr. laga um Seðlabanka Íslands er gert ráð fyrir að árlegur hagnaður greiðist í ríkissjóð ef honum er til að dreifa, óháð því hvert eigið fé bankans er. Eiginfjárstaðan hefur aftur á móti áhrif á það hversu hátt hlutfall hagnaðarins skuli greitt í ríkissjóð. Ef eigið fé bankans svarar ekki að lágmarki til 2,25% af fjárhæð útlána og innlendrar verðbréfaeignar lánakerfisins í lok árs skal aðeins greiða þriðjung hagnaðarins en annars tvo þriðju hluta hans.
Engar algildar reglur eða viðmið eru til um eigið fé seðlabanka. Þörfin fyrir eigið fé seðlabanka getur samkvæmt því verið mismunandi frá einu ríki til annars eftir stefnu í peninga- og gjaldeyrismálum á viðkomandi stað, eðli þeirra markmiða og verkefna sem þeim eru falin og sömuleiðis efnahagsumhverfi. Æskilegt er að eiginfjárstaða seðlabanka sé þannig að hún tryggi nauðsynlegar tekjur til að standa undir starfsemi bankans og veiti svigrúm til að mæta tapi ef áhætta er til staðar á efnahagsreikningi eða stafar af óvissu í rekstrarumhverfinu. Við mat á óvissu er meðal annars tekið tillit til áhrifa af væntanlegum og mögulegum breytingum á eignum og skuldum Seðlabankans vegna þjóðhagslegra aðstæðna, fyrirkomulags gengis- og peningamála eða, eins og nú háttar til, aðlögunar sem þörf er á vegna áhrifa fjármálakreppunnar á efnahag bankans.
Í frumvarpinu er lögð til sú meginregla að þegar hagnaður er á starfsemi Seðlabanka Íslands verði honum varið til greiðslu í ríkissjóð enda sé hann ekki lagður við eigið fé. Ef mat á eigin fé bankans reynist vera undir þeim eiginfjárviðmiðum sem lýst er í 2. mgr. greinarinnar skal leggja árlegan hagnað við eigið fé hans að því marki sem þörf er á til að þeim verði náð. Í þessu samhengi er þó rétt að taka fram að reikningsskilareglur bankans gera ekki ráð fyrir að óinnleystur bókfærður hagnaður í uppgjöri bankans geti myndað grundvöll til greiðslu hagnaðar til ríkissjóðs. Í samræmi við það mun Seðlabankinn halda sérstakan reikning, gangvirðisreikning, meðal eigin fjár, sem ætlað er að halda utan um hreyfingar vegna hagnaðar og tapa sem myndast hafa vegna verðbreytinga á markaði. Þessi reikningur mun einkum halda utan um gangvirðisbreytingar vegna gengis krónunnar og verðbreytingar á erlendum eignum og skuldum.
Í 2. mgr. 2. gr. frumvarpsins er lagt til að lögfest verði sérstök eiginfjárregla sem mati á eiginfjárviðmiði Seðlabanka Íslands er ætlað að byggjast á. Samkvæmt reglunni skal matið byggt á tveimur meginþáttum. Í fyrsta lagi er um að ræða mat á tekjum og gjöldum af eignum og skuldum bankans. Samkvæmt því á að miða við að tekjur bankans af þeim eignum sem fjármagnaðar eru með skuldum sem ekki bera vexti skuli að lágmarki standa undir rekstrarkostnaði bankans. Í öðru lagi er um að ræða mat á þeirri áhættu og óvissu sem bankinn stendur frammi fyrir á hverjum tíma. Mat þetta varðar tvennt, annars vegar mat á áhættu sem er til staðar á efnahagsreikningi bankans og metin er með skilgreindri tölfræðilegri aðferðafræði og hins vegar mat á óvissu um rekstur bankans sem metin er á grundvelli sviðsmyndagreiningar sem nær til næstu þriggja ára.
Í ákvæði 3. mgr. 2. gr. frumvarpsins er gert ráð fyrir að Seðlabankinn meti eiginfjárviðmið bankans árlega en sú ákvörðun ræður því að hve miklu leyti hagnaður verður greiddur í ríkissjóð eða honum ráðstafað til að styrkja eigið fé bankans. Þegar mat bankans liggur fyrir er lagt til að það verði sent þeim ráðherra er fer með málefni ríkissjóðs til skriflegrar umsagnar þar sem honum er gefinn kostur á að lýsa sjónarmiðum sínum áður en ákvörðun um eiginfjárviðmið og ráðstöfun hagnaðar er tekin. Eins og fram kemur í 1. gr. frumvarpsins er lagt til að bankaráð Seðlabankans, sem hefur eftirlit með því að bankinn starfi í samræmi við lög sem um starfsemi hans gilda, staðfesti ákvörðunina.
Að lokum er lagt til í 4. mgr. 2. gr. að ríkissjóður gefi út stofnfjárloforð sem geri bankanum kleift á hverjum tíma að uppfylla eiginfjárviðmið. Í loforðinu felst að ríkissjóður skuldbindur sig til að leggja bankanum til eigið fé í formi markaðshæfra ríkisskuldabréfa fyrir allt að 3% af vergri landsframleiðslu sem bankinn getur innleyst. Má nefna í því sambandi að í umfjöllun þess vinnuhóps sem unnið hefur að samningu frumvarpsins hefur verið gengið út frá því að til innlausnar gæti komið ef eigið fé bankans færi niður fyrir samtölu eiginfjárþáttar samkvæmt a-lið 2. mgr. og 1. tölulið b-liðar sömu málsgreinar, þ.e. ef eigið fé bankans færi niður fyrir samtölu þessa eiginfjárþáttar.
Seðlabankinn mun á grundvelli loforðsins geta kallað eftir auknu framlagi ríkissjóðs ef fyrirsjáanlegt er, samkvæmt framangreindu mati, að eigið fé bankans dugi ekki til að mæta lágmarksþörf þrátt fyrir að bankinn haldi eftir hagnaði og leggi við eigið fé sitt. Áður en að innköllun kemur skal því fyrst ganga úr skugga um hvort hægt sé að ná æskilegri tölu með því að halda eftir hagnaði og bæta við eigið fé. Mat þetta skal byggt á spá um ráðstöfun hagnaðar næstu þriggja ára. Fyrirkomulagið um innkallanlegt eigið fé mun gera Seðlabankanum kleift að vera með betri eiginfjárstöðu en ella. Ekki á að leika nokkur vafi á að efnahagsreikningur bankans sé nægjanlega sterkur til að beita stjórntækjum bankans þannig að markmiðum þeim sem bankanum eru sett sé náð. Þá er einnig um að ræða hagstæða fjárhagsráðstöfun fyrir ríkissjóð. Fjármagn er ekki bundið í bankanum á sama tíma og það er hafið yfir allan skynsamlegan vafa að Seðlabankinn hafi aðgang að þessu fjármagni sem eigin fé. Lagt er til að nánar verði kveðið á um tilhögun þessa í samkomulagi milli ríkissjóðs og Seðlabankans.
Áhrifin á fjárhag ríkissjóðs felast í því að með þessu verður hægt að lækka stöðu innborgaðs eigin fjár um 26 milljarða kr. Þeim fjármunum verður varið til að lækka það skuldabréf sem ríkissjóður gaf út til að styrkja eigið fé bankans í kjölfar veðtapa sem bankinn varð fyrir við fall fjármálafyrirtækja á árinu 2008. Með því dregur úr vaxtakostnaði um 1,3 milljarða kr. og skuldsetning ríkissjóðs lækkar um 26 milljarða kr., þ.e. nálægt 1,5% af landsframleiðslu.
Virðulegi forseti. Að þessu sögðu legg ég til að málinu verði að lokinni þessari umræðu vísað til 2. umr. og hv. efnahags- og viðskiptanefndar sem fær málið til skoðunar.