143. löggjafarþing — 102. fundur,  2. maí 2014.

störf þingsins.

[10:49]
Horfa

Ásmundur Friðriksson (S):

Virðulegi forseti. Mig langar að ræða um þau verk sem ríkisstjórnin hefur framkvæmt frá því að við hófum þing hér í haust. Mér finnst rétt þegar í þinglokin hallar að við förum aðeins yfir helstu punktana í því.

Við skiluðum hallalausum fjárlögum sem var mikilvægt að ná eftir að verulegur halli hafði verið á fjárlögum síðustu fjögur ár að minnsta kosti, eða um 400 milljarðar, þannig að þetta var stórt skref fram á við. Við höfum lækkað skatta á einstaklinga um 5.000 milljónir. Það þótti mörgum lítil skattalækkun og gerðu lítið úr henni, en það er hátt í ljósi þess að fyrrverandi ríkisstjórn ætlaði að halda áfram að hækka skatta. Við höfum lækkað tryggingagjaldið um 1 milljarð og ætlum að halda áfram og stefnum að því að lækka tryggingagjald um 4 milljarða á kjörtímabilinu. Við endurnýjuðum ekki óréttlátan auðlegðarskatt og það var mikilvægt að sú endurnýjun ætti sér ekki stað. Við lækkuðum veiðigjöld af sjávarútveginum. Það er ljóst að markaðsaðstæður og afkoma sjávarútvegsins gefa ekki tilefni til þess að hann sé skattlagður umfram það sem eðlilegt getur talist.

Við erum að tala um lækkun skatta á fyrsta ári þessarar nýju ríkisstjórnar á bilinu 20–25 milljarðar. Við getum með sanni sagt að ríkisstjórnin og meiri hlutinn í þinginu hafi tekið rétta beygju og að hún stefni sannarlega í þá átt sem hún ætlar sér. Við höfum dregið úr skerðingu bóta og hækkað frítekjumark ellilífeyrisþega og öryrkja úr 400 þús. kr. í 1.100.000 kr. á mánuði svo að það eykur möguleika þessa hóps til frekari tekjuöflunar. Við höfum samtals lagt um 8 milljarða í það kerfi og um 10 milljarða í heilbrigðiskerfið. Hagvöxturinn er kominn upp, það er aukin fjárfesting í landinu, það flytja fleiri til landsins en frá því, þannig að það er margt jákvætt að gerast. Við eigum að hafa það í huga, hv. þingmenn, þegar við ræðum málin (Forseti hringir.) að það er margt jákvætt að gerast í landinu okkar og vonandi verður það svo áfram.