143. löggjafarþing — 102. fundur,  2. maí 2014.

störf þingsins.

[10:56]
Horfa

Vigdís Hauksdóttir (F):

Virðulegi forseti. Ég þakka þann jákvæða tón sem er í þinginu í dag hvað varðar framtíðarsýn landsins.

Það sem ég ætla að gera að umtalsefni mínu er akkúrat staða Alþingis og sú krafa sem gerð er til lagasetningar. Eins og við vitum er ekki starfandi lagaskrifstofa við þingið, sem hefur það hlutverk að lesa yfir frumvörp, reglugerðir og þingsályktunartillögur sem koma til þingsins til samþykktar eða synjunar, og því er enginn öryggisventill sem liggur að baki því að viðkomandi frumvörp og þingsályktunartillögur standist stjórnarskrá, önnur íslensk lög og alþjóðasamninga.

Því miður gerðist það fyrir nokkrum dögum að fara þurfti í lagabætur vegna losunarkerfis ESB varðandi flugið. Allt síðasta kjörtímabil benti ég á að losunarheimildarkerfið sem tekið var upp hér á landi í gegnum EES-samninginn bryti í bága við alþjóðasamninga, t.d. Chicago-samninginn sjálfan sem hamlar því að ríki geti hvert fyrir sig sett skatt á flug. Nú hefur komið í ljós að hér á landi þurfti að setja lög til að draga úr þessari löggjöf Evrópusambandsins og fresta gildistökuákvæðinu því að ríki utan EES voru að sjálfsögðu afar óánægð og bentu á að það væri lögbrot að ESB tæki sér slíkt lagasetningarvald í alþjóðlegu flugi. Það var verið að færa það til baka að ESB gæti lagt losunarheimildir á flug innan og utan ESB. Við erum verklaus þegar kemur að lagasetningu sem snýr að EES-samningnum því að þrátt fyrir mótmæli í þinginu þá bárust þau að sjálfsögðu ekki til Evrópusambandsins.

Þetta er akkúrat dæmi um það, virðulegi forseti, að í þinginu sjálfu þarf að taka til hendinni og stofna lagaskrifstofu sem hefur þetta hlutverk.