skipasmíðar og skipaiðnaður.
Virðulegi forseti. Því er oft haldið fram í almennri umræðu um skipasmíðar að þær hafi lagst alveg af á Íslandi. Vissulega hafa orðið miklar breytingar á þessum markaði, ef við getum orðað það svo, en það er langt í frá að það sé þannig að skipasmíðar hafi lagst af.
Þannig hafa smábátar verið framleiddir hér frá því í kringum 1980. Í fyrstu voru þessir bátar litlir, þeir voru kannski 6–8 metrar og allt að 6 brúttótonn, en hægt og rólega hefur þetta þróast áfram í takt við veiðikerfi smábáta fram til ársins 1995 en þá verður breyting 1998 þar sem koma burðarmeiri bátar, fyrst innan 6 brúttótonna marksins, en þeir voru bæði öruggari, með meiri ganghraða og burðargetu en áður hafði þekkst.
Það er áætlað að smíði á Íslandi sé einhvers staðar á fjórða hundrað báta á þessum tíma, jafnvel nær 400 bátum. Ég hef ekki fengið þessa tölu nákvæmlega, þ.e. frá árinu 1998. Bátarnir hafa síðan stækkað mikið í tímans rás og þess vegna hefur smíðinni eðlilega fækkað, afkastagetan hefur verið minni.
Þetta er samt sem áður orðin mjög blómleg og öflug atvinnugrein. Tækifærin leynast víða í þessari grein. Segja má að markvisst markaðsstarf erlendis hafi hafist upp úr 1995, það hefur náðst nokkuð góður árangur, sérstaklega víða í Evrópu. Útgerðarmenn í Bretlandi, Noregi og Frakklandi hafa margir til dæmis keypt sína báta og kaupa sína báta hér. Fyrsta nýsmíðin til Noregs var afgreidd árið 2002 en fyrir þann tíma var talið alveg óhugsandi að Norðmenn færu að kaupa báta af Íslandi. Í dag má fullyrða að stór hluti smærri útgerða í Noregi horfi til íslenskrar nýsmíði fram yfir norska. Í Bretlandi fer mjög gott orð af íslenskri bátasmíði og þar er orðinn sterkur markaður. Þá var fyrsti báturinn afgreiddur til Frakklands 2009. Það er líklegast fyrsta nýsmíðin frá Íslandi til Frakklands í sögunni. Síðan þá hafa verið afgreiddir margir bátar til Frakklands. Auk þess hafa verið afgreiddir bátar til margra fjarlægari landa til margs konar nota. Íslenska báta má nú finna í öllum heimsálfum utan Norður-Ameríku og Ástralíu. Þjónusta við olíuiðnaðinn er einnig orðin mikilvægur hluti starfsemi að minnsta kosti einnar bátasmiðjunnar hér á landi og nú þegar er búið að afgreiða sjö þjónustubáta í sambandi við olíuiðnaðinn og fleiri pantanir eru í farvatninu.
Þrátt fyrir þessa miklu þróun og þar sem heimamarkaðurinn spilar mjög mikilvægt hlutverk er meðalaldur íslenskra smábáta í kringum 18–19 ár. Það er heilmikill iðnaður í kringum þessa smíði, afleidd störf eru fjölmörg og það má reikna með að um 200 manns vinni við þessar bátasmíðar og viðgerðir plastbáta.
Það þarf að skoða menntunarmál alveg sérstaklega í iðnaði sem snýr að plastbátasmíðinni. Eins og sagði áðan urðu miklar breytingar í þessari grein og má segja að hinni hefðbundnu skipasmíði sem við kölluðum, stálbátasmíði, hafi lokið í kringum 1990. Í dag er meðalaldur eldri vertíðarbáta hjá okkur í stærri skipum 41 ár og hjá yfir 150 tonna skipum er talinn mjög algengur aldur 29–39 ár. Meðalaldurinn er sennilega 35 ár, eitthvað slíkt.
Það eru því mikil tækifæri fram undan á þessum vettvangi, mikil fjárfestingarþörf í sjávarútveginum sem menn verða auðvitað að hafa í huga þegar við ræðum veiðigjöld. Við verðum að hafa í huga getu iðnaðarins til að endurnýja sig. Í Noregi og Danmörku hafa til dæmis skipasmíðar á þessum skala þróast með þeim hætti að menn láta smíða skrokka erlendis og taka þá síðan og fullsmíða þá í heimalandinu. Þarna er auðvitað langmesta verðmætið, í fullfrágangi á svona smíði.
Þetta eru verkefni sem við þurfum að horfa til hvort við getum ekki greitt leið inn í íslenskt samfélag að nýju. Það á einnig við um þjónustu, breytingar og viðhald á stærri skipum okkar. Það hafa verið umræður um það að koma hér upp einhvers konar þjónustumiðstöð, skipakví sem tekur þessi stærri skip og þar þarf samstarf aðila í útgerð og þjónustugreinum við sjávarútveginn. Það mundi leiða til þess að aukin verkefni erlendis frá til að færa hingað til Íslands.
Við getum minnst á stórar breytingar (Forseti hringir.) sem eru að verða á þessum vettvangi og það er mikilvægt að við eflum þennan iðnað í landinu. Það eru öll tækifæri til þess.