143. löggjafarþing — 102. fundur,  2. maí 2014.

framkvæmdarvald og stjórnsýsla ríkisins í héraði.

250. mál
[12:45]
Horfa

Svandís Svavarsdóttir (Vg) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir góða ræðu. Mig langar kannski til að staldra við eitt atriði því að við erum sammála í öllum meginatriðum en eins og fram kom í yfirferð hv. framsögumanns málsins er um að ræða sameiginlegt álit nefndarinnar í heild. Mig langar að spyrja hv. þingmann, vegna þeirrar umræðu sem hefur verið uppi um framkvæmdina. Nú erum við hér löggjafinn vonandi að ljúka löggjöfinni en við höfum skoðanir á því hvernig best færi síðan á því að koma lagabreytingunni til framkvæmda. Við höfum reynt að sauma utan um það með ákveðnum hætti í nefndaráliti og breytingartillögum o.s.frv., en það sem við höfum kannski ekki snert á beint er sá þáttur sem snýr að því hvar embættin eiga að vera staðsett.

Það er eitthvað sem er auðveldara um að tala en í að komast. Þá vil ég spyrja hv. þingmann: Hvaða kríteríur eiga að gilda þegar verið er að taka ákvarðanir um það hvar þessi embætti eiga að vera niður komin? Það er jú viðfangsefni framkvæmdarvaldsins í samstarfi við sveitarfélögin. En ef sveitarfélögin koma sér ekki saman um það og ef ekki er sátt um það meðal sveitarfélaganna þá er mikilvægt að það sé einhver sýn á það hvaða kríteríur eigi að gilda. Eru það þau svæði þar sem er mestur fjöldi eða flestir íbúar eða hvaða leiðarljós getum við sett fram til að hjálpa til með það að framkvæmdin verði með sem farsælustum hætti?