143. löggjafarþing — 102. fundur,  2. maí 2014.

framkvæmdarvald og stjórnsýsla ríkisins í héraði.

250. mál
[13:59]
Horfa

Svandís Svavarsdóttir (Vg) (andsvar):

Virðulegi forseti. Á meðan hv. þingmaður var í sínu síðara andsvari fræddi formaður nefndarinnar og framsögumaður mig á því að hér væri í raun um það að ræða, og það kemur raunar fram í nefndarálitinu, að hæfisreglurnar miða við hæfisreglur dómara þannig að það væri þá þar sem byrja þyrfti á að skoða málið. En ég er alveg sammála hv. þingmanni að það er örugglega um að ræða börn síns tíma vítt og breitt í löggjöfinni. Svo gætum við rætt um það að hafi menn einhvern tímann þurft að vera þrítugir til þess að geta eitthvað hvort þeir þurfi ekki að vera fertugir í dag, en það er önnur saga.

Mig langar líka að nefna það sem hv. þingmaður fór hér yfir varðandi þjónustufulltrúa og starfsstöðvar úti um land. Ég hugsaði heilmikið um það þegar ég gegndi embætti umhverfisráðherra og svo umhverfis- og auðlindaráðherra þar sem er gríðarlega mikið af starfsstöðvum, að ekki er um að ræða hefðbundna þjónustu alls staðar, heldur eru til að mynda stofnanir eins og Veðurstofa Íslands, Náttúrufræðistofnun, Umhverfisstofnun og fleiri af þessum stóru stofnunum með starfsstöðvar úti um allt land. Það er víða þannig að það eru kannski bara einn eða tveir eða þrír starfsmenn sem heyra undir viðkomandi starfsstöð. Í einu sveitarfélagi eru kannski starfsmenn margra stofnana og hver um sig hefur kannski bara einn, tvo eða þrjá starfsmenn. Ég held að það væri fullt tilefni til þess að skoða það sérstaklega og væri ekki bara ágætt að starfsmaður Veðurstofu Íslands væri við hliðina á einhverjum sem gegndi einhverju allt öðru verkefni einfaldlega vegna þess að það er hvetjandi að vera innan um fólk sem sinnir ýmsum öðrum verkefnum?

Þessar fámennu starfsstöðvar eru því ekki góðar, hvorki fyrir starfsþróun, starfsanda né nokkuð annað. (Forseti hringir.) Þarna tel ég að sé óplægður akur og ég held að það væri mjög spennandi að nálgast það með þeim hætti sem hv. þingmaður nefnir.