143. löggjafarþing — 102. fundur,  2. maí 2014.

framkvæmdarvald og stjórnsýsla ríkisins í héraði.

250. mál
[16:40]
Horfa

Guðbjartur Hannesson (Sf) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna. Það er auðvitað þannig, eins og hefur komið fram í langri umfjöllun um þessi tvö frumvörp, að það er fullt af álitamálum. Engu að síður náðist sátt um málið í hv. allsherjar- og menntamálanefnd og hafa menn fallist á ákveðnar útfærslur og lausnir.

Ég vakti athygli á því í fyrri ræðu minni að það er kannski meðal annars vegna þess að við skildum eftir stærstu ágreiningsefnin, þ.e. það sem liggur í loftinu að getur orðið alvarlegur ágreiningur um. Það er annars vegar staðsetning sýslumannsembættanna og hins vegar lögreglustjóraembættanna.

Ég hef fylgst með þessari umræðu, fyrir utan það sem kom til nefndarinnar hef ég fylgst ágætlega með henni í Norðvesturkjördæminu. Mig langar aðeins að heyra frá hv. þingmanni um umræðuna á norðausturhorninu. Það er gert ráð fyrir að ákveðið samráð sé haft um hvernig að þessu eigi að standa, m.a. að leitað sé til samtaka sveitarfélaga, landshlutasamtaka, en því var breytt úr Sambandi íslenskra sveitarfélaga í landshlutasamtök sveitarfélaga. Þeir aðilar, sveitarfélögin og viðkomandi lögreglustjóraembætti annars vegar og hins vegar sýslumannsembættin, eiga síðan að koma sér saman um hvar þessar tvær aðalstöðvar í héraði eiga að vera. Þó að það verði svo starfsstöðvar með löglærðum aðilum geri ég mér grein fyrir því að menn hafa mikinn áhuga á því að ná þessum embættum til sín og geta orðið hörð átök um það.

Eitt af stóru álitamálunum sem komu upp í nefndinni og var rætt mikið og tengist þessu var að Vestmannaeyjar væru teknar út úr og eru þeir í rauninni bæði með lögreglustjóraembætti og sýslumann. Það var ekki fellt undir Suðurlandið. En það komu líka fram alveg skýr sjónarmið, bæði frá Seyðisfirði og Höfn í Hornafirði, um að það væri líkt ástand á þeim stöðum, ekki síst vegna ferjunnar frá Seyðisfirði, og að þar ættu einnig að vera starfsstöðvar. (Forseti hringir.)

Mig langar að heyra sjónarmið hv. þingmanns sem þekkir norðausturhlutann (Forseti hringir.) miklu betur en ég.