fyrirspurn um lekamálið í innanríkisráðuneytinu.
Virðulegur forseti. Sem þingflokksformaður tek ég undir óskir hv. þingmanns til forseta og raunar óháð þeirri yfirlýsingu sem hæstv. ráðherra hefur nú sent frá sér. Það er einfaldlega þannig eftir stjórnarskránni að Alþingi er falið eftirlitshlutverk með framkvæmdarvaldinu og þingskapalög kveða skýrt á um skyldur ráðherra til að svara fyrirspurnum allra alþingismanna. Frá því eru engar undanþáguheimildir. Ég lít svo á að ráðuneytinu sé og hafi alltaf verið skylt að svara þeirri fyrirspurn sem hv. þingmenn lögðu hér fram fyrr í vetur og að löngu sé komið fram yfir dagsetningu um það. Það getur ekki verið sjálfdæmi ráðherrans hvaða fyrirspurnum hann svarar og hverjum ekki, jafnvel þó að lögreglurannsókn standi yfir. Ef hann telur ekki rétt að upplýsa um einstök atriði, ef hann tilgreindi það í svari við þeim atriðum sem hægt er að svara núna að einhverjum einstökum atriðum eða ákveðnum rökstuðningi sé ekki svarað, færi best á því að það væri að ósk ríkissaksóknara að ekki væri upplýst um það og sá rökstuðningur væri fyrir hendi en ekki bara sjálfdæmi ráðherra fyrir því hvaða fyrirspurnum hann svarar og hverjum ekki.