tillögur verkefnisstjórnar í húsnæðismálum.
Virðulegur forseti. Það að láta eitt yfir alla ganga og ráðast í almennar aðgerðir hefur verið algert grundvallaratriði í stefnu þessarar ríkisstjórnar varðandi skuldamálin og aðrar úrbætur frá því að hún tók við. Því er horfið frá þeim sértæku leiðum sem voru alls ráðandi á síðasta kjörtímabili. Ég get hins vegar ekki annað en endurtekið það sem ég sagði áðan við hv. þingmann, að kynningin fer fram kl. fjögur í dag. Það hlýtur að vera eðlilegt að mati hv. þingmanns að hlutirnir séu kynntir fyrst, m.a. fyrir fulltrúum stjórnarandstöðunnar, áður en menn taka ákvörðun. Menn hljóta að vilja fá upplýsingarnar fyrst og taka svo ákvörðun um framhaldið.
Hvað varðar hins vegar húsnæðissamvinnufélögin þá er leiðréttingin leið til að koma til móts við einstaklinga. Það kunna að vera aðrar leiðir betri til að rétta hlut húsnæðissamvinnufélaganna og gera það rekstrarform æskilegt og skynsamlegt til lengri tíma litið en leiðréttingin miðar að því að leiðrétta lán einstaklinga.