gjaldskrárlækkanir o.fl.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Pétri H. Blöndal fyrir að staðfesta það að hann flutti hér ásamt þingmönnum Sjálfstæðisflokksins og undir forustu núverandi hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra, Bjarna Benediktssonar, sérstakt þingmál um að lækka verulega gjöld á eldsneyti, sem ætti að skila sömu tekjum þrátt fyrir lækkunina. Þessir heiðursmenn eru ekki fyrr komnir í stjórnarmeirihluta en þeir flytja þingmál um hið gagnstæða, ekki um það að lækka, ekki um það að láta það standa í stað, heldur þvert á móti hafa þeir beitt sér sérstaklega fyrir því að hækka gjöld á það sem þeir í stjórnarandstöðu lögðu til að lækkaði.
Ég held að það sé alveg óþarfi fyrir mig að hafa mörg orð um það hverju það lýsir. Ég held að allir þeir sem fylgjast með þessum umræðum átti sig býsna vel á því hverju það lýsir þegar forustumenn í stjórnmálum flytja tillögu af einu tagi þegar þeir eru í stjórnarandstöðu en síðan tillögu af allt öðru tagi um leið og þeir eru komnir í stjórnarmeirihluta.
Ég vil hvetja þá til sem fylgjast með þessum umræðum að muna þennan viðsnúning, vegna þess að slíkan viðsnúning leika menn allt of oft í skjóli þess að minni kjósenda sé stutt. Þegar menn ganga jafn berlega gegn kosningaloforðum sínum og hér er verið að gera þá á fólk að muna það.