gjaldskrárlækkanir o.fl.
Frú forseti. Við ræðum hér frumvarp til laga um gjaldskrárlækkanir. Frumvarpið kom til vegna þess að við gerð kjarasamninga á almenna vinnumarkaðnum í desember sl. var þetta eitt af því sem var lagt fram af hálfu ríkisstjórnarinnar til þess að liðka fyrir gerð kjarasamninga og er það gott og blessað. Ég man að þegar þessi mál voru til umfjöllunar fyrir áramótin hvatti ég ríkisstjórnina til þess að feta sömu braut og Reykjavíkurborg hafði gert með því að hækka ekki gjaldskrár sínar eða færa verðlagið upp á kostnaðarliðum sínum. Það varð niðurstaðan að menn lofuðu þessu við gerð kjarasamninga en efndirnar komu ansi seint fram, að mér þykir, og líta dagsins ljóst nokkrum mánuðum seinna og eiga ekki að taka gildi fyrr en 1. júní 2014. Þær eiga ekki koma til framkvæmda fyrr en svo að sú upphæð sem var ákveðið að leggja í þetta mun hafa rýrnað ansi mikið, um 200 milljónir. Ég tel þetta vera mikinn forsendubrest og í raun svik af hálfu ríkisvaldsins gagnvart aðilum vinnumarkaðarins við þessa kjarasamningagerð. Þetta er orðinn allt annar hlutur en var gengið fram með á því stigi þegar samningar voru undirritaðir. Þeir voru ekki samþykktir nema af um helmingi þeirra sem greiddu atkvæði um þá og mönnum þóttu þeir ekki feitur biti miðað við þær kröfur sem gengið var fram með. Þetta voru kjarasamningar upp á um 2,8% og ríkisvaldið var ekki tilbúið til þess að koma til móts við Alþýðusambandið eða verkalýðshreyfinguna um að hreyfa neitt við því að hækka persónuafsláttinn eins og kröfur voru um og hefði gagnast lágtekjufólki, en komu með þetta innlegg sem síðan skilar sér, tel ég, að smánarlega litlu leyti og eru svik við aðila vinnumarkaðarins og þá sérstaklega það sem snýr að fólkinu sem þetta átti að koma til góða.
Mig langar að vitna í umsögn ASÍ um þetta frumvarp. Þar eru forsendur þessara lækkana rifjaðar upp og áréttað að málinu hafi verið dreift á Alþingi 13. febrúar og tekið til umræðu á þingfundi rúmum mánuði síðar, 18. mars, og þá vísað til umfjöllunar í efnahags- og viðskiptanefnd. Alþýðusambandið telur að það sé algjörlega óásættanleg töf sem orðið hefur á málinu, og tek ég undir það, og að í því birtist áhugaleysi stjórnvalda á að styðja við forsendur aðila vinnumarkaðarins um að skapa grundvöll fyrir auknum efnahagslegum stöðugleika hér á landi sem þetta átti að vera innlegg í. Alþýðusambandið telur að æskilegra hefði verið að taka til endurskoðunar miklar hækkanir á gjaldskrám í heilbrigðisþjónustu sem tóku gildi um síðustu áramót. Ég get tekið undir það heils hugar að það er alltaf hálf ankannalegt þegar menn rétta fram einhverjar sporslur með annarri hendinni en taka þær aftur með hinni. Mér þykir þetta því miður vera orðinn þannig leikur að þær hækkanir sem ríkisvaldið hefur hleypt í gegn annars staðar er orðnar miklu þyngri í vasa launþega en lækkanirnar núna sem enginn veit hvernig eiga eftir að skila sér. Það veit ekki nokkur maður hvernig lækkanirnar eiga eftir að skila sér til neytenda.
Hér er talað um lækkanir á bensíngjaldi. Við þekkjum það öll sem ökum og þurfum að kaupa bensín eða olíu að þar rokkar verðið frá degi til dags og enginn veit af hvaða orsökum það er, hvort það er vegna sveiflna á heimsmarkaðsverði eða vegna samkeppni milli olíufélaganna í landinu sem breyta verðinu frá degi til dags til þess að reyna að ná til sín kúnnum, þótt þeir elti allir hver annan þegar upp er staðið. Ég sé ekki hvernig í ósköpunum á að marka það sem er nákvæmlega innlegg ríkisvaldsins í lækkun bensíngjalds, olíugjalds, í kjarasamningum og það sem er lækkun sem menn geta af einhverjum sökum ekki skýrt á þann hátt.
Ég get svo sannarlega tekið undir það með ræðumanni sem talaði áðan, hv. þm. Steingrími J. Sigfússyni, að það hefði verið skynsamlegt að lækka frekar olíu- og þungaskattinn þar sem það hefði strax áhrif á flutningsverð í landinu. Það skilar sér í vöruverði vítt og breitt um landið og hefur þannig mikil áhrif. En það varð ekki niðurstaðan. Menn minnka líka markaðar tekjur til vegagerðar og nóg er nú samt fyrir. Ég tel það ekki til fyrirmyndar að fara í slíka þætti sem skilar sér í minna viðhaldi á vegum og rekstri og þjónustu, vetrarþjónustu, víða um land og alls staðar um landið og tel það ekki til hagsbóta fyrir launþega að fara í sérstaka bensíngjaldið á þann hátt sem gert er hér.
Þá sný ég mér aftur að umsögn Alþýðusambandsins um þessar gjaldskrárlækkanir sem koma seint og um síðir og er þá búið að trappa niður um einar 200 milljónir og gildistakan um mitt sumar. Í umsögninni er talað um að eðlilegt hefði verið að taka til skoðunar hinar miklu hækkanir í heilbrigðisþjónustunni og að þær hækkanir komi illa við viðkvæma hópa og skili sér vissulega út í vísitöluna og hafi áhrif á neysluverð. Í greinargerð með frumvarpinu er áætlað að lækkun gjaldanna, sem við erum að tala um í frumvarpinu, geti lækkað vísitölu neysluverðs um 0,08%. Að mati Alþýðusambands Íslands er um talsvert ofmat að ræða og ólíklegt að áhrif aðgerðarinnar á vísitölu neysluverðs verði meiri en 0,04% eða 0,05% að teknu tilliti til þess að þetta skili sér að fullu til lækkunar á verðlagi, sem ég hef miklar efasemdir um að það geri.
Það er verið að tala um að lækka áfengis- og tóbaksgjöld. Ég ákvað í vetur þegar það lá fyrir að þetta frumvarp færi í gegnum þingið að spyrja í einu útibúi Áfengis- og tóbaksverslunar ríkisins hvenær lækkanirnar á áfengisgjaldinu mundu skila sér í útibú vítt og breitt um landið. Sá sem ég talaði við þar taldi miðað við fyrri sambærilegar breytingar að það kæmi ekki til þess næstu mánuði. Það ætti eftir að klára birgðir og þetta færi í gegnum heildsala og svo til smásala og breytingar mundu því ekki að líta dagsins ljós á næstunni í viðkomandi útsölum Áfengis- og tóbaksverslunar ríkisins. Ég velti því upp í umræðunni, ekki vegna þessa að ég sitji og bíði eftir þessari lækkun heldur vegna þess að það er svolítill hráskinnaleikur í kringum þetta allt, leiktjöldum er brugðið upp en það er ekki innstæða fyrir þessu og ég held að það skili sér því miður ekki til neytenda.
Mér finnst allt þetta mál vera orðið þannig að mjög eðlilegt og skynsamlegt sé að taka það til endurskoðunar og horfa þá í þá tölu sem var rætt um í upphafi, þær 400–500 millj. kr. sem átti að leggja í þetta til að reyna að halda sig innan við verðbólgumarkmið og styrkja það að kaupmáttur héldist. Miðað við alla seinkunina á málinu og það að upphæðin hafi rýrnað af hálfu ríkisins vegna seinkunar framkvæmda á gildistöku laga er miklu eðlilegra að taka málið aftur til nefndarinnar og standa við þau loforð um að leggja þessa fjárhæð í púkkið sem gefin voru við gerð kjarasamninga 21. desember 2013 á almenna markaðnum, fá verkalýðshreyfinguna og aðila vinnumarkaðarins, Samtök atvinnulífsins, að borðinu, kalla þá fyrir nefndina og fara yfir hvernig hægt sé að nýta þá fjármuni til að koma til móts við launþegana sem áttu í hlut.
Við vitum mætavel að síðan þeir kjarasamningar voru gerðir hafa aðrir kjarasamningar verið gerðir og þeir kjarasamningar voru ekki upp á 2,8%, og eðlilegt að þeir sem gerðu kjarasamninga í desember sl. spyrji sig hvort það verði alltaf raunin að þeir séu látnir ríða á vaðið og ganga fram með einhver loforð frá ríkisvaldinu sem halda ekki og þeir sitji svo uppi með svarta pétur.
Ég vildi forgangsraða þessum fjármunum öðruvísi. Það er af nógu að taka og ég held að það skorti ekki á tillögur frá forustumönnum þeirra verkalýðsfélaga sem þarna áttu í hlut. Það er með ólíkindum hvernig þessi ríkisstjórn hefur unnið í þágu þeirra efnameiri frá því að hún settist við stjórnvölinn og gegn þeim sem minna mega sín og verið ófeimin við að setja álögur á þá hópa sem síst skyldi, hvort sem það er í formi hækkana gjalda innan heilbrigðisþjónustu, hækkana ýmissa tækja sem nýtast við sjúkraþjálfun og nýtast iðjuþjálfum og fólk þarf að greiða fyrir. Alltaf er hægt að nuddast í þeim sem hafa ekkert borð fyrir báru.
Þegar kemur að þeim efnameiri virðist ekki skorta á drifkraft, þegar auðlegðarskattur er rifinn af og hætt við að framlengja hann, þegar tekjuskattskerfinu er breytt, sem var sett á í tíð fyrir ríkisstjórnar til jöfnunar, þrepaskipt, og skattar á hátekjufólk lækkaðir, eitthvað sáralítið á millitekjuhópana og þeim sem falla í lægri tekjuflokka ekkert umbunað, eins og ég nefndi áðan varðandi hækkun á persónuafslætti með einhverjum hætti. Svo ég tali nú ekki um það sem núna er á borði okkar á Alþingi, að það eigi að drífa í gegn enn eina lækkun á veiðigjöldum hjá þeim sem hafa mest umleikis, stærstu útgerðarfélögum landsins, og lækka enn frekar á þessu ári og næsta. Með þeirri lækkun, ef hún gengur fram, verður það samtals 19 milljarða kr. byrði sem núverandi ríkisstjórn telur ástæðu til að létta af útgerð í landinu, sem hefur sem betur fer skilað gífurlegum hagnaði frá hruninu. Þótt ég telji eðlilegt að skoða málin út frá útgerðarflokkum og taka til greina endurskoðun hjá þeim sem eru í minni útgerðarflokkunum, það er ekki hægt að setja þá undir sama hatt og hina sem eru með stórútgerðir, liggur ljóst fyrir að það er engin innstæða fyrir því að lækka auðlindagjald á útgerðina um tæpa 19 milljarða frá árinu 2013, ef það frumvarp um lækkun veiðigjalda sem liggur fyrir Alþingi núna verður samþykkt.
Það er svo mikil skömm að því þegar maður hugsar um það í þessu samhengi, þegar verið er að nuddast með einhverjar 400 milljónir í gerð kjarasamninga sem eiga að liðka fyrir og mæta þeim sem verst eru settir, en svo standa menn ekki við loforð sín og framkvæma seint og illa og það týnist í hækkunum eins og á bensíni, olíu, áfengi og tóbaki og skiptir hinn almenna launþega þessa lands ekki nokkru máli þegar upp er staðið.
Ég held að ríkisstjórnin megi hysja upp um sig buxurnar og gera betur gagnvart því fólki hér á landi sem hefur þörf á því að fá stuðning (Forseti hringir.) í lífsbaráttu sinni.