143. löggjafarþing — 106. fundur,  6. maí 2014.

gjaldskrárlækkanir o.fl.

315. mál
[20:22]
Horfa

Guðbjartur Hannesson (Sf) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna. Ég held að enginn ágreiningur sé um það í þingsalnum að gríðarlega mikilvægt var að reyna að ná kjarasamningum og það var gríðarlega mikilvægt að reyna að halda verðbólgunni niðri. En það vakti athygli manns að forsendur í fjárlögum voru nú 3% á sama tíma og menn settu sér markmið um að halda verðbólgunni í 2,5%.

Það kom líka mjög á óvart að þegar verið var að vinna kjarasamningana var rætt um að ríkið þyrfti að leggja sitt fram. Það kom í framhaldi af því að sveitarfélögin höfðu tekið frumkvæði, fyrst Reykjavík og síðan komu hvert á fætur öðru sem hurfu frá gjaldskrárhækkunum og tóku út allar verðbólguleiðréttingar, eða hvað á að kalla það, verðhækkanir í samræmi við verðlagshækkanir, til að hamla gegn þróun á hækkun verðbólgunnar.

Á móti kemur að ríkið velur sjálft það sem það vill fara í og velur áfengi, tóbak og bensínlækkun. Í sjálfu sér hefði maður getað sagt það miðað við fyrri umræðu, menn hafa oft talað um það að bíllinn sé mjög stór útgjaldaliður á heimilunum og við erum að tala þar um, a.m.k. eftir því sem FÍB segir, 15,5% af útgjöldum heimilanna, þá er væntanlega miðað við dæmigerðu viðmiðin. En ef maður skoðar síðan hvað þetta þýðir að taka eina krónu af bensínlítranum, þá reiknast mér til að hjá þeim sem keyrir 25 þúsund kílómetra sé það um 200–250 kr. lækkun á bensínkostnaði á mánuði.

Á sama tíma kemur fram í umsögn sem Samtök atvinnulífsins skiluðu í tengslum við kjarasamningana að bara með því að lækka komugjöldin í opinberu háskólana, þ.e. að hækka þau ekki (Forseti hringir.) um 15 þús. kr., hefðum við náð sama markmiði hvað varðar verðbólguna. (Forseti hringir.) Er þetta ekki undirstrikun á því að forgangsröðunin sé nú ansi skrýtin?