143. löggjafarþing — 106. fundur,  6. maí 2014.

gjaldskrárlækkanir o.fl.

315. mál
[21:21]
Horfa

Guðbjartur Hannesson (Sf) (andsvar):

Hæstv. forseti. Í umsögn Alþýðusambandsins draga þeir fram að þegar menn fóru að vinna að kjarasamningum og þegar fjárlagafrumvarpið kom fram var reiknað með því að áhrif frumvarpsins, gjaldskrárhækkanir, á vísitölu neysluverðs væri 0,3%, þar af 0,2% vegna ríkisins. Þess vegna eru menn að biðja um að ríkið dragi úr álögum sínum, til þess að lækka vísitölu neysluverðs eða tryggja að hækkunin verði minni svo hægt sé að ná verðbólgumarkmiðunum. Síðan segir, með leyfi forseta:

„Í bréfi sem fjármálaráðherra ritaði forseta ASÍ skömmu fyrir undirritun kjarasamninga áréttaði hann mikilvæg verðstöðugleika og lýsti því yfir fyrir hönd ríkisstjórnarinnar að við samþykkt kjarasamninga yrðu endurskoðaðar til lækkunar breytingar á gjöldum sem samþykktar höfðu verði við afgreiðslu fjárlaga til að stuðla að því að verðlagsáhrif sem af þeim leiða verði minni en ella.“

Þarna er ekki tilgreint hvað. Þetta er það sem við erum að fjalla um hér, birtingarform þess sem menn ætla að gera. Það kemur svo fram að þetta eigi að vega 0,08% — takið eftir 0,08 — af 0,2. Það er ekki nema lítill hluti. Þá kemur ASÍ með þá athugasemd að þarna sé um að ræða verulegt ofmat, að reikna með því að það muni hafa þessi áhrif, og segir að aðgerðirnar muni hafa þau áhrif á vísitölu neysluverðs að það muni varla vera meira en 0,04 eða 0,05%.

Þetta er það sem hefur farið þarna á milli. Ég kann ekki að leggja mat á hvort menn telji þetta fullnægjandi eða ekki. Það er rétt sem hv. þingmaður segir að Samtök atvinnulífsins gera ekki athugasemd við þetta. Það sem við erum kannski fyrst og fremst að gagnrýna er að þetta sé lítið, þótt við höfum skilning á því að tryggja þurfi afkomu ríkissjóðs, og ég gagnrýni hver forgangsröðunin er.