143. löggjafarþing — 106. fundur,  6. maí 2014.

gjaldskrárlækkanir o.fl.

315. mál
[21:44]
Horfa

Lilja Rafney Magnúsdóttir (Vg) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir góða ræðu.

Ég vil fara aðeins ofan í gagnrýni launþegasamtakanna á frumvarpið eða framkvæmd þess og hve seint það er fram komið hvað varðar þau loforð sem höfð voru uppi við gerð síðustu kjarasamninga og að ekkert sé hlustað á gagnrýni samtakanna í umsögnum þeirra, miðað við að þetta hafi dregist svona á langinn, að fá að koma aftur að málinu og endurskoða með hvaða hætti þetta innlegg ríkisstjórnarinnar í gerð kjarasamninga megi nýtast þeim sem þurfa á því að halda. Ég velti fyrir mér hvort ekki sé einhvern veginn enn hægt að bæta úr því, kalla málið til nefndar milli 2. og 3. umr. og mynda meiri sátt um þessa aðkomu ríkisvaldsins á kjarasamningunum og að það fjármagn verði að fullu nýtt sem var ætlað í þessar aðgerðir í lok desember við gerð kjarasamninganna. Þá var þessi upphæð 400–500 milljónir en núna er búið að lækka hana niður í 268 milljónir miðað við að gjaldskrárlækkanir taki ekki gildi fyrr en 1. júní. Telur hv. þingmaður að það eigi að reyna að bjarga þessu fyrir horn með því að hlusta á skynsamlegar tillögur stéttarfélaganna um hvernig væri hægt að nýta þá fjármuni betur í þágu launþega sem áttu að njóta góðs af, t.d. með lækkun á komugjöldum og annarri heilbrigðisþjónustu sem hefur hækkað mikið (Forseti hringir.) frá því þetta var ákveðið?