gjaldskrárlækkanir o.fl.
Hæstv. forseti. Við ræðum hér framlag ríkisstjórnar Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar, hæstv. forsætisráðherra, til kjarasamninga. Það muna það allir þingmenn í þessum sal að þegar við vorum að ljúka umræðu um fjárlagafrumvarpið var mikið uppnám vegna kjarasamninga og ríkisstjórnin þurfti að mæta því með ýmsu móti. Þetta mál er eitt af þeim málum.
Eins og fram hefur komið í máli annarra hv. þingmanna minni hlutans er þetta ekki stórmál. Eftir hrun fjármálakerfisins, hrun íslensku krónunnar, og hrun á trausti til stjórnmálamanna, höfum við hér á þessum vettvangi verið að kljást við mjög skuldsettan ríkissjóð. Því var mætt með niðurskurði. Því var mætt með hækkunum á sköttum. Við vitum öll að miklar byrðar hafa verið lagðar á fólk í þessu landi, hvort sem það eru lífeyrisþegar, launafólk eða ýmsir þeirra sem reka fyrirtæki, sem ekki síður en heimili urðu fyrir barðinu á hækkun eða á gengishruni og verðtryggingu og auk þess voru sum þeirra allt of skuldsett.
Með þessu frumvarpi átti að stuðla að því að það dragi úr verðbólguáhrifum af ýmsum hækkunum í fjárlagafrumvarpinu. Áhrifin áttu að nema, að því er fram kemur í frumvarpinu, 0,08% lækkun á vísitölu neysluverðs. ASÍ segir að sú lækkun sé nær því að vera 0,04 til 0,05% áhrif á verðlag ef verðlækkanirnar skila sér að fullu. Slíkar lækkanir skila sér til allra heimila ef verðbólga verður minni en ella, en í beinum fjármunum mundu þessar lækkanir þýða 322 millj. kr. ef þær lækka að fullu. Samkvæmt frumvarpinu áttu þetta að vera 460 millj. kr. Nú hefur gildistíminn verið færður til 1. júní þannig að í stað þess að þessi lækkun á hækkun næði til tíu mánaða af samningstíma kjarasamninga mun hún ná til sjö mánaða. Það kann að vera að ég sé ekki með þessa útreikninga algjörlega á hreinu, en eitt er víst að 460 millj. kr. munu ekki skila sér til íslenskra heimila í formi lækkunar á útgjöldum heldur er það nær 300 millj. kr.
Þetta frumvarp er táknrænt að mörgu leyti, því að það sýnir okkur þá forgangsröðun sem hægri stjórnin, unga hægri stjórnin, viðhefur þegar hún meðhöndlar ríkisfjármálin. Ég ætla að taka undir orð margra þingmanna, orð sem hér hafa fallið í kvöld, sem hafa spurt hver á fætur öðrum af hverju ekki hafi verið tekið tillit til gagnrýni frá Alþýðusambandi Íslands og Starfsgreinasambandinu um að eðlilegt væri að fara frekar í lækkun á gjaldskrám í heilbrigðisþjónustu, það mundi skila sér betur til launafólks.
Þetta er annað kjörtímabilið mitt hér, herra forseti, þess vegna hef ég kynnst því að skera niður á ýmsum stöðum og oft hefur maður nú ekki gert það mjög glaður í bragði heldur með óbragð í munni. Sumt af því var erfitt, en metið nauðsynlegt. Það voru því gríðarleg vonbrigði fyrir okkur sem ákváðum að leggja meiri byrjar á breiðari bökin, sem leituðum leiða til þess að niðurskurður bitnaði síst á þeim tekjulægstu, að viðsnúningur skyldi hafa orðið á þeirri stefnu. Það kom fram strax á sumarþingi. Þá voru veiðigjöldin, það þótti nú ekki eðlilegt að útgerðin greiddi það gjald sem ákveðið hafði verið fyrir afnot af okkar sameiginlegu auðlind, og karp það stendur enn yfir af því enn á að lækka þau, en það var líka vaskurinn á ferðaþjónustu. Við stóðum hér minni hlutinn og andæfðum, ekki síst við þingmenn Samfylkingarinnar og Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs sem vissum hvað það þýddi að afsala sér tekjum fyrir ríkissjóð. Við erum alveg sammála markmiðum núverandi ríkisstjórnar um að ná hallalausum fjárlögum, en við erum ekki sammála þeirri aðferðafræði sem beitt er við það.
Þessi ríkisstjórn stendur vörð um arð útgerðarfyrirtækja, sem sagt umframarð útgerðarfyrirtækja vegna afnota af sameiginlegri auðlind okkar, meðan hún er ekki tilbúin til þess að framlengja auðlegðarskatt sem er eignarskattur á fólk sem á nettóeignir langt, langt umfram það sem hinn almenni borgari á Íslandi á, og er ekki tilbúin til þess að hætta að greiða niður með vaski gistingu í einni af stærstu atvinnugreinum landsins, ferðaþjónustu, þegar virðisaukaskattskerfið gefur í raun til gistingarinnar í dag, það varð ljóst með afgerandi hætti. Í stað þess á að leggja viðbótarálögur á almenning í þessu landi. Það var gert með 15 til 20% hækkun komugjalda í heilsugæslu. Það var gert með breytingum á niðurgreiðslum á hjálpartækjum, sumar voru eðlilegar í tímanna rás, en aðrar voru það með engu móti. Til dæmis það að hætta að greiða niður bleiur fyrir aldraða eða þá sem þurfa fullorðnir að nota bleiur. Við vitum mörg sem höfum fengið erindi út af þessu að fólki þótti það sárt og niðurlægjandi. Hv. þm. Oddný Harðardóttir fór ágætlega yfir það í sinni ræðu hvaða hækkanir voru þarna.
Þá voru innritunargjöld í háskóla sem hækkuðu um 25%, úr 60 þús. kr. í 75 þús. kr. Útvarpsgjaldið var hækkað um 600 kr. og vegabréf voru hækkuð um 2.000 kr., úr 8.200 í 10.200.
Svo voru hækkuð gjöld á eldsneyti um 3% í samræmi við verðlag, nú á að hætta við hækkun um 3% þannig að hækkunin verði 2%. Auðvitað njóta ýmis heimili þess að fá lækkun á eldsneytisverð sem er umtalsvert fyrir heimilin í landinu, en það er nú líka þannig að það eru olíufyrirtæki í þessu landi sem eru mjög oft að veita afslátt með alls kyns hætti, afslátt sem er langt umfram þessa lækkun og virðast vera aflögufær með það. Núna í kvöld var eitt þeirra að auglýsa. Í tilefni af títtnefndum framgangi íslensku tónlistarmannanna í Eurovision þá ætlaði olíufélagið á miðvikudaginn að vera með afslátt upp á 10 kr. auk 1–10 kr. eftir því hvar í röðinni þeir yrðu lesnir upp í úrslit. Það verður 20 kr. afsláttur á bensíni á miðvikudaginn hjá ákveðnu olíufélagi og umtalsverður kostnaður í auglýsingar á þeim afslætti, þannig að það væri kannski ástæða til að setja þessa 1% lækkun frekar í fjárveitingu til Samkeppniseftirlitsins eða Neytendastofu svo að hægt sé að kanna hvernig álagningu sé háttað í þeim geira. Þetta eru eðlileg hugrenningartengsl þegar við lesum um þessa rúmu krónu á bensínlítrann sem á að lækka álögur og tekjur ríkissjóðs.
Svo kemur að lækkuninni á áfengi og sígarettum eða tóbaki. Það er mjög óeðlilegt að enginn þingmaður úr meiri hlutanum hafi komið hér og rætt þessar áherslur ríkisstjórnarinnar, t.d. þeir þingmenn sem eru hlynntir því að hér verði opnuð spilavíti. Þetta er kannski í anda þeirrar stefnu. Þeim finnst þetta kannski passa vel inn í það módel að sýna svona hvert sé stefnt, hvar áherslurnar séu í velferðarmálum og hvernig ríkisstjórnin vilji koma til móts við launafólk í þessu landi.
Áfengis- og tóbaksvandi er samkvæmt Alþjóðaheilbrigðisstofnuninni tvö atriði af fjórum eða fimm sem flokkast sem stærsta ógn við heilsu mannkyns, ekki síst á Vesturlöndum. Áfengi er þar í ríkara mæli, enda hefur tekist að draga þó nokkuð úr tóbaksnotkun og stóru alþjóðlegu tóbaksfyrirtækin beita sér nú í æ ríkari mæli í löndum sem eru að brjótast úr fátækt og í miklum hagvexti og eru að koma sér þar á markaðinn, auk ýmissa landa sem teljast til þróunarríkja. Jafnframt er talað um það hjá Alþjóðaheilbrigðisstofnuninni að sterkasta vopnið í baráttu við þessa ógnvalda við lýðheilsu í heiminum og heilsufar almennt sé að takmarka aðgengi eins og kostur er og í gegnum skattlagningu, þ.e. verðlag. Hún hefur bent sérstaklega á Norðurlöndin, utan Danmerkur auðvitað, sem þau lönd sem rétt sé að líta til varðandi stefnumörkun á þessu sviði. En unga hægri stjórnin hefur ekki áhyggjur af Alþjóðaheilbrigðisstofnuninni eða heilsufarsvandamálum, það verður enn kaldranalegra í ljósi þess að stærstu samtök launafólks beinlínis kalla eftir því að frekar sé lögð áhersla á að lækka kostnað launafólks við það að heimsækja heilsugæsluna.
Það er þess vegna, herra forseti, sem við hér í minni hlutanum nýtum tækifærið sem þetta frumvarp gefur til þess einmitt að taka þessa umræðu, hvers konar forgangsröðun við erum að verða vitni að hér fimm árum eftir hrun. Það svigrúm sem stjórnvöld á hverjum tíma meta að sé til staðar er nýtt til þess að ívilna þeim sem mest hafa í samfélaginu og gjaldskrárlækkanir eru á þeim efnum sem kannski eru skaðleg heilsu fólks í stað þess að draga úr álögum í heilbrigðisþjónustu sem hafa hækkað mjög svo á síðustu áratugum eins og farið hefur verið yfir.
Áðan var líka rætt um jöfnuð og þá firru að hæstv. forsætisráðherra þakkaði sér aukinn jöfnuð á Íslandi, á meðan hið sanna er að hann á ekkert í þeim árangri, þvert á móti, eins og við óttumst að tölur muni sýna okkur þegar líður á árið 2015 og 2016 ef fram heldur sem horfir. Það er árangur sem náðist með mjög ákveðinni stefnumörkun um að draga úr þeim ójöfnuði sem hér hafði skapast í aðdraganda hrunsins, í stjórnartíð Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks. Einmitt, þessara sömu flokka sem nú eru komnir til valda.
Sjálfstæðisflokkurinn reið nú ekki feitum hesti frá þessum kosningum í sögulegu ljósi, en mótaðili hans frá fyrri árum, Framsóknarflokkurinn, náði með loforðum um hundruð milljarða í skuldaniðurfellingu og afnám verðtryggingar, hvort tveggja loforð sem hafa útvatnast mjög og alls er óvíst hvaða stefnu muni taka — það var þess vegna sem þessir flokkar sitja nú við völd. Þeir fengu um 51% atkvæða, en hafa mun meiri styrk hér í þinginu en stuðningur við þá sagði til um. Kokhreystin er takmarkalaus þegar kemur að því að auka álögur á almenna borgara eða að minnsta kosti nýta ekki svigrúm fyrir almenning hér í landinu og varðandi Evrópusambandið sem ég ætla nú ekki að ræða hér.
Það var líka þessi ríkisstjórn sem ákvað að sýna engan metnað varðandi byggingu nýs Landspítala eða endurnýjun á húsakosti Landspítalans. Það er vonandi að vaxandi þrýstingur, bæði innan úr heilbrigðiskerfinu og frá borgurum þessa lands, sem hafa miklar áhyggjur af því hvert stefni, muni leiða til þess að nú verði í auknum mæli horft til þess að finna fjármuni til að fjármagna nýtt sjúkrahús í stað þess að ívilna þeim sem mest hafa og finna svo einhverja smáaura til að (Forseti hringir.) kasta í launafólk seint og síðar meir.