gjaldskrárlækkanir o.fl.
Herra forseti. Ég nefndi það áðan að þetta hefði verið rætt í nefndinni. Getið var um þetta í nefndaráliti meiri hluta þannig að þetta er ekkert óþekkt, menn greindi á um hvaða leiðir ætti að fara en menn töldu sig hins vegar bundna við það að lækka skatta en ekki að lækka gjöld í heilbrigðisþjónustunni. Mikil áhersla var lögð á að þetta væri til þess að lækka verðlag. Þegar þetta kemur til framkvæmdar 1. júní munu áhrifin verða þau sömu til lækkunar verðlags á þeim tímapunkti eins og það hefði gert hefði það tekið gildi 1. mars eins og fyrst var fyrirhugað.
Hv. þingmaður, sem er hagfræðimenntuð, hlýtur náttúrlega líka að átta sig á því að það eru önnur öfl sem valda verðbólgu en það hvort menn hækki einhverja krónutöluskatta eða lækki þá um krónur eða aura. Það eru miklu stærri kraftar sem virka, samkeppni, hvort samkeppni sé nægilega mikil, og það ættu aðilar vinnumarkaðarins náttúrlega að horfa sérstaklega til, eða hvort afgangur sé á stöðu opinberra aðila með því að hafa halla, hvort sem hann er sýndur eða raunverulegur. Það hefur nú komið í ljós að við fjárlög síðustu ríkisstjórnar á síðasta kjörtímabili var gífurlegur halli, þó að það væri ekki eins mikill halli á fjárlögum og fjáraukalögum vegna þess að ríkisreikningur sýndi 101 milljarð þar sem menn höfðu farið fram úr fjárlögum. Það er náttúrlega bara nákvæmlega eins og að hafa fjárlögin með halla og veldur verðbólgu.
Aðilar vinnumarkaðarins ættu miklu frekar að horfa til þess að menn fari að fjárlögum, hafi ríkissjóð án halla, og sveitarfélögin sömuleiðis, því að þá er miklu meiri von til þess að verðbólgan haldist lág, enda sýna tölur Hagstofunnar að hún hefur haldist undir 2,5% síðustu þrjá mánuði.