143. löggjafarþing — 107. fundur,  9. maí 2014.

tilkynning um skrifleg svör.

[10:33]
Horfa

Forseti (Einar K. Guðfinnsson):

Borist hafa þrjú bréf frá innanríkisráðuneytinu þar sem óskað er eftir fresti til að veita skrifleg svör við fyrirspurn á þskj. 893, um framkvæmd á úrskurðum kjararáðs vegna laga nr. 87/2009, frá Vilhjálmi Bjarnasyni, fyrirspurn á þskj. 818, um ökunám, frá Jóhönnu Maríu Sigmundsdóttur, og fyrirspurn á þskj. 587, um nauðungarsölur á fasteignum, frá Árna Páli Árnasyni.