143. löggjafarþing — 107. fundur,  9. maí 2014.

störf þingsins.

[10:54]
Horfa

Helgi Hjörvar (Sf):

Virðulegur forseti. Vegna orða síðasta hv. þingmanns þá getur sannleikurinn aldrei verið óásættanlegur. Ríkisstjórnin forgangsraðar í þágu efnafólks og fólks með hærri tekjur. Um það þarf ekkert að deila, það liggur bara á borðinu. Að það sé sagt upphátt á íslensku kann að trufla þingflokksformann Sjálfstæðisflokksins en hann verður bara að lifa við það því að forgangsröðunin er þannig. En um það ætlaði ég ekki að ræða.

Sem þingflokksformaður Samfylkingarinnar fagna ég yfirlýsingu formanns utanríkismálanefndar síðustu daga um að óraunsætt sé að afgreiða megi Evrópusambandstillöguna úr utanríkismálanefnd innan þess tímaramma sem starfsáætlun þingsins setur okkur. Ég held að í því felist tækifæri fyrir okkur til að setja til hliðar þetta deilumál sem skapað hefur mikla erfiðleika í þinghaldinu í vetur og einbeita okkur að þeim forgangsmálum ríkisstjórnarinnar sem hafa einmitt verið til umræðu í störfum þingsins. Það geta auðvitað verið ólík sjónarmið um stóru skuldamálin en ég held að það hljóti að vera mikilvægt og mikill ávinningur í því ef takast mætti að afgreiða þau nú þegar þau eru komin úr nefnd og gera að lögum af þeim sem það vilja og styðja og koma í framkvæmd áður en kemur að sveitarstjórnarkosningunum núna í lok maí.

Ég vil þess vegna hvetja til þess að við notum þá stöðu sem upp er komin í meðferð Evrópusambandsmálsins í hv. utanríkismálanefnd, að horfast í augu við að því miður verður ekki lengra komist í vinnslu málsins innan starfsáætlunar, leggja þessar deilur til hliðar og einbeita okkur að því að taka til afgreiðslu þau höfuðmálefni sem þingmenn og stjórnmálaflokkarnir hér í þinginu hafa verið að leggja áherslu á í vetur og þá ekki síst helsta forgangsmál ríkisstjórnarinnar, skuldamál.