störf þingsins.
Herra forseti. Ég kem hingað upp sem þingmaður Reykjavíkurkjördæmis suður til að taka undir áskorun borgarstjórnar frá því á þriðjudag til heilbrigðisráðherra um að fylgja eftir viljayfirlýsingu sem fyrrverandi velferðarráðherra gaf út síðastliðið vor. Á ársfundi Landspítalans sem var haldinn fyrir skömmu varð hæstv. heilbrigðisráðherra tíðrætt um að við værum ekki í pólitískum skotgröfum. Það voru mér því mikil vonbrigði að sjá daginn eftir í Fréttablaðinu yfirlýsingar hans í þá veru að viljayfirlýsing fyrrverandi ráðherra hefði verið eitthvert ódýrt kosningatrikk. Því fer fjarri, því að viljayfirlýsing sú sem var undirrituð er í samræmi við eldri áætlanir og var ekki gerð að neinni kosningauppákomu. Engin opinber undirritun var í kastljósi fjölmiðla, ekki var verið að skreyta heimasíðuna með flúri varðandi þá viljayfirlýsingu heldur var hún í samræmi við brýna þörf á fjölgun hjúkrunarrýma í Reykjavík.
Núverandi ráðherra gaf sjálfur út viljayfirlýsingu um að fara í samninga við sérgreinalækna en hefur ekki enn fengið fjárveitingu til að standa við þá samninga sem þegar hafa verið undirritaðir frá Alþingi. Því vil ég hvetja þingmenn sem telja hjúkrunarrými mikilvæg fyrir velferð í landinu að standa með viljayfirlýsingu fyrrverandi ráðherra en falla ekki í pólitískar skotgrafir núverandi hæstv. heilbrigðisráðherra.