143. löggjafarþing — 107. fundur,  9. maí 2014.

framkvæmdarvald og stjórnsýsla ríkisins í héraði.

250. mál
[15:28]
Horfa

Bjarkey Gunnarsdóttir (Vg):

Virðulegi forseti. Ég tek undir með hv. þm. Helga Hrafni Gunnarssyni varðandi þessa breytingartillögu. Það er ánægjulegt að heyra að nefndin ætli að taka hana til umfjöllunar.

Mig langar aðeins að tala um þetta mál. Eins og ég sagði í fyrri ræðu minni hef ég ákveðnar áhyggjur. Málið er að mörgu leyti gott, en ég hef samt sem áður áhyggjur af því að hér sé að mörgu leyti verið að samþykkja viðamikið og risastórt mál í ágreiningi við þá sem málið snýst um, lögregluna. Um málið eru mjög skiptar skoðanir.

Ég hef líka miklar áhyggjur af því sem kemur fram í umsögnum, að staðsetningin geti orðið bitbein og skiptimynt á hinum ýmsu verkefnum. Ég tek undir það sem kemur fram í umsögn varðandi verkefni verkefnastjórnarinnar í þessari samrunaáætlun og framkvæmd á þessari breytingu, hvernig þetta eigi allt saman að vera. Það liggur ekkert fyrir. Það geta verið skiptar skoðanir um hvort það eigi að koma til umræðu hér eða ekki, eða hvort þetta eigi alfarið að vera úti á meðal sveitarfélaganna.

Ég hef, eins og ég sagði, áhyggjur af því að þetta geti orðið skiptimynt á einhverju öðru. Hvað verður látið ráða för þegar sýslumannsembættin verða staðsett og hvar lögreglustjórarnir verða staðsettir? Mér finnst engar hugmyndir koma fram hér. Mér fannst það ekki koma fram í ræðum nefndarmanna um þetta mál hvernig þetta yrði. Ég spurði t.d.: Ef einhver starfsstöð stækkar og önnur minnkar, verður fólki boðinn tilflutningur af því að það er talað um að fólki eigi ekki að fækka? Það liggur ekki fyrir heldur og þá tek ég það fram að ég held að ekki verði öllum í rauninni kleift að fara missi þeir starfið. Talað er um að flytja verkefni en formaður nefndarinnar treystir sér ekki til þess að nefna hvaða verkefni gætu verið undir.

Mig langar líka til þess að spyrja, af því ég veit að hér er lögreglumaður í salnum, um kerfi. Ég hef starfað í veitingageiranum. Hvernig verður t.d. með eftirlit með honum? Það getur vel verið að ég sé að misskilja, en mig langar til þess að vita hvernig þetta er hugsað ef sýslumenn eiga að taka þetta til sín en lögreglan á svo að fylgja því eftir í praxís. Þurfa kerfin að tala sama? Gera þau það í dag eða ekki, þ.e. þau sem hafa gagnagrunn fyrir þessi mál?

Það eru svo margir svona hlutir sem mér finnst athugaverðir ef við erum að setja lög sem eiga að taka gildi á þessum tíma, sem mér finnst ekki hafa komið fram.

Mér fannst ekki umsagnir allra vera mjög jákvæðar, á meðan aðrir voru afskaplega ánægðir eins og gefur að skilja. Sem nefndarmaður í fjárlaganefnd sé ég að rosalega er mikið um það að ekkert er vitað hvað þessir hlutir kosta. Mig langar til að spyrja hvort einhver tala hafi komið fram sem nefndarmenn treysta sér til að ræða út frá, eða hvað?

Fyrst og fremst hef ég áhyggjur af því að það verði hrossakaup varðandi staðsetningu stofnananna. Verða húsin látin ráða, þ.e. sums staðar eru fínar byggingar, þær eru síðri annars staðar? Hvað verður látið ráða för t.d. til að draga úr kostnaði við þessa framkvæmd? Verða það stóru staðirnir? Verða það miðsvæðin? Ef það liggur nokkurn veginn fyrir, af hverju er það ekki bara sagt?

Það er eitt að segja að sveitarfélögin eigi að taka að sér að gera þetta og annað að sjá það þannig að þau stærri verði ekki ofan á í þeirri umræðu.