143. löggjafarþing — 107. fundur,  9. maí 2014.

framkvæmdarvald og stjórnsýsla ríkisins í héraði.

250. mál
[15:49]
Horfa

Bjarkey Gunnarsdóttir (Vg) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Það var ágætt að fá þetta fram með annars vegar lögreglustjórann og hins vegar sýslumanninn af því að ég hafði hugsað þetta á hinn veginn. Gjarnan er það þannig í kjörnunum þar sem þjónustustigið er hærra. Það er svoleiðis núna hjá okkur að sýslumenn eru mjög víða eins og við vitum.

Af því að ég ræddi húsnæði áðan dettur mér í hug að á Akureyri er nýbúið að taka húsnæði sýslumannsins í gegn fyrir ansi miklar fjárhæðir og þess vegna kemur þessi spurning upp í hugann. Þetta er ekki eign sem verður einfalt að selja þótt ég viti það ekki, það má vel vera, en að minnsta kosti veltir maður fyrir sér hvort svoleiðis aðgerðir sem lauk bara á síðasta ári muni ráða för.

Það er gott að vita að nefndin er að minnsta kosti meðvituð um þetta. Ég geri ráð fyrir að þetta verði samþykkt og velti fyrir mér í framhaldinu hvernig við getum fylgt því eftir. Auðvitað eru hér sett lög sem við sleppum svo hendinni af að einhverju leyti, að þessu sinni í hönd landshlutasamtakanna, sem er að mörgu leyti af hinu góða eins og ég sagði áðan þótt ég hafi ákveðnar efasemdir um að það geti verið farið að víla og díla með aðra hluti í þessu samhengi. Við þurfum að vera á varðbergi og grípa inn í ef okkur finnst eitthvað eiga sér stað sem ekki getur talist heppilegt eða ætti að einhverju leyti ekki að fara fram með þeim hætti sem það gerir.

Eins og ég segi er ég ekki ósammála frumvarpinu í grunninn, ekki öðru en því sem (Forseti hringir.) varðar húsnæði.