áhrif skuldaleiðréttingar á fjárhag sveitarfélaga.
Herra forseti. Í vetur hefur verið leitast við að fá sameiginlega sýn á þann kostnað sem af aðgerðunum leiðir og hafa komið fram misvísandi útreikningar á því sem á endanum leiddu til þess að menn settu saman hóp til að tryggja að allir notuðu sömu forsendur. En það hefur engin ákvörðun verið tekin, hvorki til né frá, um að koma með einhverjum hætti til móts við sveitarfélögin af því tilefni, enda eru, eins og hv. þingmaður veit, fjárhagsleg samskipti ríkis og sveitarfélaga gríðarlega flókið fyrirbæri. Þannig var til dæmis ekki farið fram á það að sveitarfélögin mundu á einhvern hátt gefa eftir eða láta ríkinu eftir nýja skatta sem kynntir voru í tíð síðustu ríkisstjórnar en sveitarfélögin nutu góðs af. Ég nefni í því sambandi til dæmis bankaskattinn.
Það hefur heldur ekki verið farið fram á það þegar teknar hafa verið ákvarðanir í þinginu um að verðtryggja persónuafslátt að sveitarfélögin leggðu eitthvað af mörkum, heldur hefur ríkið tekið það allt á sig og tryggt sveitarfélögunum í landinu, sveitarstjórnarstiginu, algerlega óskert útsvar sem ríkið tekur að sér að innheimta fyrir sveitarstjórnarstigið. Reyndar er það svo að það er að verða sífellt hærra frítekjumarkið gagnvart ríkinu og í dag sér ríkið engan tekjuskatt af launum upp í 240 þúsund, m.a. vegna þessa.
Þetta vil ég nefna til þess að draga það fram hversu gríðarlega flókin fjárhagsleg samskipti ríkis og sveitarfélaga eru. Það má út af fyrir sig taka einstök mál eins og hv. þingmaður gerir og segja: Hér hallar á annan aðilann. En þegar við tökum stóru myndina undir held ég að það þurfi ekki endilega að vera svo.