143. löggjafarþing — 108. fundur,  12. maí 2014.

staða sjúkraflutninga á höfuðborgarsvæðinu.

[11:08]
Horfa

Árni Þór Sigurðsson (Vg):

Herra forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir þær upplýsingar sem hann kom með við þessa fyrirspurn. Engu að síður veldur staða málsins mér miklum vonbrigðum og áhyggjum. Ég held að við hljótum öll að vera sammála um að það er mjög mikilvægt að tryggja framtíð sjúkraflutninga á höfuðborgarsvæðinu. Í umræðum hér í janúar kom fram að flestir voru þeirrar skoðunar að það væri bæði fjárhagsleg og fagleg rök fyrir því að semja við Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins um framhald þessara sjúkraflutninga.

Á fundi sem slökkviliðið hélt með þingmönnum og sveitarstjórnarfólki á höfuðborgarsvæðinu í kjölfar þessarar umræðu komu líka fram þær upplýsingar að ágreiningurinn um fjárhæðir væri í raun ekki svo mikill. Meðal annars staðfesti hv. formaður fjárlaganefndar, þingmaður Reykjavíkur, að svo væri, það væru alls ekki svo stórar upphæðir sem bæri á milli að ekki ætti að vera hægt að ljúka þessu máli.

Ég (Forseti hringir.) hlýt að spyrja hæstv. ráðherra hvort það sé hugsanlega einhver (Forseti hringir.) vilji í ráðuneytinu hjá honum að fara aðra leið í prinsippinu en að semja við Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins. Ég hvet að sjálfsögðu til þess að ráðuneytið reyni að finna lausn sem allir mega vel við una.