143. löggjafarþing — 108. fundur,  12. maí 2014.

málefni innflytjenda.

517. mál
[12:34]
Horfa

Guðbjartur Hannesson (Sf) (andsvar):

Hæstv. forseti. Nú ætla ég ekki að ætla neinum, hvorki hæstv. ráðherra né þeim sem hér hafa talað, annað en að vilja þjónustuna sem hér er undir sem besta. Ég verð að viðurkenna að mér brá svolítið þegar ég tók eftir því að Ríkisútvarpið var farið að spyrja ríkisstjórnina um framkvæmd á hagræðingartillögum hagræðingarhópsins. Menn eru byrjaðir að telja hvað hafi komið í framkvæmd og hér er ein af þeim tillögum kannski að fara bakdyramegin inn. Ég gagnrýndi það strax í byrjun því að þarna voru settar upp yfir 100 tillögur, engar þeirra hafa komið formlega til umræðu hér, þ.e. hvort vinna eigi frekar með þær að mati Alþingis. Það er auðvitað ekki gott. Ef þegar það kemur svo frá einstökum þingmönnum er það út af fyrir sig ágætt, en það verður þá að koma sem slíkt.

Ég veit að hæstv. ráðherra er búinn að biðja hér um orðið, þannig að hann kemur sjálfsagt til með að svara þessu áður en við klárum þessa umræðu hér í dag. Ég held að það sé mjög mikilvægt fyrir framgang þessa máls að heyra betur um hvað er að baki.

Mig langar að spyrja hv. þm. Lilju Rafneyju Magnúsdóttur varðandi það, og kannski ráðherra, að koma inn á það á eftir, hver hættan er í því að skipa til fimm ára. Forstöðumaður Fjölmenningarseturs er einn af starfsmönnum skrifstofunnar, hann er ekki settur sem yfirmaður til að gera ekkert annað. Hann er að vinna á plani alla daga og ekki bara í stjórnun heldur í öllum öðrum verkefnum til jafns við alla aðra starfsmenn. Er einhver hætta fólgin í því að hann sé skipaður til fimm ára og starfi áfram hjá hugsanlega nýrri stofnun ef sátt verður um hana, í staðinn fyrir að vera að búa til þennan millileik sem hér er verið að fara fram á, að það verði afgreitt á einni viku í gegnum þrjár umræður?

Eins langar mig að heyra skoðanir hv. þingmanns á þessari framkvæmd varðandi hagræðingarhópinn.