143. löggjafarþing — 108. fundur,  12. maí 2014.

málefni innflytjenda.

517. mál
[12:38]
Horfa

félags- og húsnæðismálaráðherra (Eygló Harðardóttir) (F):

Virðulegi forseti. Ég þakka fyrir umræðuna um þetta mál. Ég verð að segja að hún kom mér eilítið á óvart í ljósi þess að hluti þeirra sem tóku þátt í umræðunni ætti að kannast ágætlega við lög um málefni innflytjenda og þá vinnu sem hefur verið í gangi sem snýr að innleiðingu hinna svokölluðu mismunatilskipana. Þessar sameiningarhugmyndir má segja að ég hafi að einhverju leyti hlotið í arf frá fyrri ráðherra og þar af leiðandi fyrri ríkisstjórn.

Það kemur mér líka eilítið á óvart að þeir sem sátu í velferðarnefnd á sínum tíma, þ.e. þeirri nefnd sem fjallaði um lög um málefni innflytjenda, skuli ekki kannast við bráðabirgðaákvæði I sem þeir sjálfir settu. Þar er heimildarákvæði um að ráðherra sé heimilt að skipa núverandi framkvæmdastjóra Fjölmenningarseturs í embætti forstöðumanns Fjölmenningarseturs til loka árs 2013. Í sjálfu sér má segja að það sem ég er einfaldlega að óska eftir, af því að ég tel að það sé heiðarlegra gagnvart þeim sem hugsanlega gætu þá sótt um starf embættis forstöðumanns, sé framlenging á þessu bráðabirgðaákvæði til 31. desember 2015. Ef Alþingi tekur þá ákvörðun að vilja ekki fara í þær breytingar sem ég kynnti áðan, og hef kynnt fyrir nefndum þingsins og það hefur líka verið í umsagnarferli á vef ráðuneytisins, gildir þetta bráðabirgðaákvæði að sjálfsögðu ekki lengur en til 31. desember 2015 og þá er ráðherra ætlað að auglýsa stöðu forstöðumanns og skipa í hana. Ég held að það sé mikilvægt að menn rifji aðeins upp forsögu málsins, ástæðuna fyrir því að ég kom með þetta mál hingað inn.

Ég vil líka taka fram, í ljósi fyrirspurnar frá hv. þm. Guðbjarti Hannessyni þar sem hann velti því upp hvort það hefðu verið einhver áform um að breyta starfsstöðvum þessara stofnana, að það hefur ekki verið rætt í ráðuneytinu. Ég hef einmitt lagt áherslu á það sem kemur mjög skýrt fram í stjórnarsáttmálanum og tillögum hagræðingarhópsins, að menn sjá ekki fyrir sér að þær breytingar sem menn leggja til þar eða stefna stjórnvalda leiði til þess að störfum úti á landi verði fækkað umfram það sem var gert á síðasta kjörtímabili. Frekar hafa menn talað fyrir því að fjölga störfum úti á landi.

Ein ástæðan fyrir því að ég nefndi þessi áform er sú að ég tel að það þurfi að efla þessar stofnanir, þær séu of litlar. Það var hluti af umræðunni um lögin um málefni innflytjenda. Menn höfðu verulegar áhyggjur af því að þarna væri um of litla stofnun að ræða.

Ég sagði líka að það væri þegar búið að auglýsa eftir sérfræðingi sem verður hjá Fjölmenningarsetrinu og mun sinna þeim verkefnum sem núverandi forstöðumaður hefur gert. Við fengum fjöldann allan af góðum umsögnum þannig að ég geri fastlega ráð fyrir því að hægt verði að ganga frá þeirri ráðningu fljótlega ef allt gengur eftir.

Ég ítreka bara að það er mikilvægt að menn kynni sér þetta. Það er skiljanlegt af því að sumir voru ekki viðstaddir afgreiðslu laganna á sínum tíma og þekkja ekki til málsins en þetta er ástæðan fyrir þessu, hér er einfaldlega verið að framlengja það bráðabirgðaákvæði sem nú þegar er í lögunum. Ég tel það heiðarlegra. Í mínum huga þýðir það alls ekki að þingið taki þar með að einhverju leyti undir þau áform sem ég talaði hér um. Ef þau ganga ekki eftir verður að sjálfsögðu skipaður forstöðumaður í samræmi við lög.