séreignarsparnaður og ráðstöfun hans til greiðslu húsnæðislána og húsnæðissparnaðar.
Frú forseti. Jú, ég held að ekki sé hægt að segja annað en að þetta sé auðvitað bullandi séreignastefnuáhersla. Það verður ósköp lítið eftir af hlýlegu tali um að menn vilji byggja upp leigumarkað og hlúa að því búsetuformi eða öðrum slíkum, svo sem húsnæðissamvinnufélögum, búseturétti eða hvað það nú væri, þegar það er allt saman skilið eftir. Jú, það eru höfð góð orð uppi um að menn eigi að lesa nýkomnar skýrslur og að sjálfsagt verði eitthvað gert einhvern tímann fyrir þessa hópa seinna, en erum við ekki að taka hérna ákvörðun um ráðstöfun gríðarlegra opinberra fjármuna? Þeir verða ekki notaðir nema einu sinni. Það er ekki hægt að nota sömu krónuna tvisvar. Það tekur í ef menn ætla svo í framhaldinu að koma með stóra pakka með miklum opinberum fjármunum í annað eins.
Ég vildi nefna aftur þetta tal með heimilin. Er það ekki þannig að það búa tæplega 330 þúsund manns á Íslandi og allir búa einhver staðar, allir eiga einhvers staðar heima? Þetta er búið að vera alveg ótrúlegt. Umræðan hefur verið þrengd niður í það að allir landsmenn búi í eigin húsnæði og séu illa skuldsettir. Það er óravegur (Forseti hringir.) frá því, en það eru þau heimili og þau ein sem menn voru að tala um (Forseti hringir.) eftir allt saman.