séreignarsparnaður og ráðstöfun hans til greiðslu húsnæðislána og húsnæðissparnaðar.
Herra forseti. Nú er það þannig að ég var að gagnrýna að farið væri í þessa aðgerð og að kostnaður á ríkissjóð væri algerlega óljós, það hefði mátt miða aðgerðina á betri hátt.
Varðandi að bæta fleirum inn var ég að tala um að vísað væri í tillögur verkefnisstjórnar þegar talað væri um leigjendur og fleiri og þá benti ég á að bókun frá hv. þm. Guðlaugi Þór Þórðarsyni, fulltrúa Sjálfstæðisflokksins í þeirri vinnu, gefi ekki fögur fyrirheit um fyrirgreiðslu fyrir t.d. leigjendur því að þar kemur fram að þingmaðurinn telji ekki til fjármagn í ríkissjóði til að fjármagna þær tillögur. Þess vegna var ég að benda á að það hefði kannski verið heppilegra að fara aðeins gagnrýnni augum yfir það hver kostnaðurinn kynni að verða fyrir ríkissjóð og eiga þá fyrir þá sem í raun og veru þurfa aukin framlög.
Ég kom líka inn á það í máli mínu að það er fjöldi heimila á Íslandi sem þyrfti að vera með aðgerðir fyrir en þessar aðgerðir beinast ekki endilega að þeim heimilum heldur þvert á móti að ýmsum heimilum sem hafa ágætisafkomu og eru hvorki í skulda- né greiðsluvanda.
Varðandi afstöðu Samfylkingarinnar til breytinganna á Íbúðalánasjóði hefur sagan sýnt okkur að þeir hefðu átt að hugsa sig betur um en ábyrgðin á þeim ákvörðunum liggur að sjálfsögðu (Forseti hringir.) hjá þeim flokkum sem þá stjórnuðu landinu, Sjálfstæðisflokki og Framsóknarflokki.