séreignarsparnaður og ráðstöfun hans til greiðslu húsnæðislána og húsnæðissparnaðar.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Árna Þór Sigurðssyni fyrir málefnalega ræðu og er sammála honum um að umræðan hér í dag hefur verið málefnaleg. Ég heyri að við erum sammála um margt, m.a. um að aukinn sparnaður og hvati til sparnaðar sé mikilvægur. Mig langar til að spyrja hv. þingmann: Hvernig telur hann að best sé að hafa áhrif á þá viðhorfsbreytingu að sparnaður sé til bóta fyrir alla? Hvernig er hægt að breyta viðhorfum til þess hvað teljist vera eðlilegur eignarhlutur í húsnæði, þ.e. að hvetja til eignar í stað skulda? Hvernig getum við náð því fram?
Mig langar einnig að ræða aðeins kynslóðareikningana sem ég þekki kannski lítið en finnast áhugaverðir. Ég er ekki að öllu leyti sammála hv. þingmanni þar. Ég tel að með því að fara þá leið sem hér er verið að ræða sé ekki verið að leggja auknar byrðar á komandi kynslóðir, hins vegar gætum við þar verið að færa til tekjur. Þarna er verið að færa framtíðartekjur yfir í eignir, sem ég velti fyrir mér hvort gæti ekki komið komandi kynslóðum til góða, þær gætu þá notið góðs af þessum eignum í formi arðs eða á annan máta, þ.e. að þær eignir sem hér verða til gætu nýst komandi kynslóðum.