143. löggjafarþing — 109. fundur,  13. maí 2014.

leiðrétting verðtryggðra fasteignaveðlána.

485. mál
[21:57]
Horfa

Árni Þór Sigurðsson (Vg) (andsvar):

Frú forseti. Nákvæmlega, ég held að hér sé einmitt um það að ræða að verið sé að hafa af fólki leiðréttingu sem það á samkvæmt öllum formúlum, samkvæmt því sem gert er ráð fyrir í frumvarpinu sjálfu og greinargerð með því og meira að segja í nefndaráliti meiri hlutans. Ég vil því spyrja hv. þingmann, bæði út af því máli og varðandi húsnæðissamvinnufélögin: Að hve miklu leyti var þetta stjórnskipulega álitamál rætt á vettvangi efnahags- og viðskiptanefndar? Komu þessi álitamál þar upp, voru þau rædd í þaula? Fékk nefndin til fundar við sig sérfræðinga í stjórnskipunarrétti til þess að fjalla sérstaklega um þetta? Hér er um svo stórt mál að ræða að það er ekki hægt fyrir Alþingi að taka nokkurn séns á því að málið standist ekki jafnræðisreglu stjórnarskrárinnar, það er bara ekki hægt.

Ég vil vita hvort hv. efnahags- og viðskiptanefnd hefur fengið á sinn fund í meðferð málsins einhverja sérfræðinga sem gætu fjallað um þetta, og ef svo er ekki, hvort ekki sé tilefni til þess að gera það á milli 2. og 3. umr.